raforkulög og stofnun Landsnets hf.
Virðulegi forseti. Ég tók að mér framsögu á nefndaráliti um mál nr. 115 sem er frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum og lögum um stofnun Landsnets hf.
Þetta frumvarp hefur fengið góða umfjöllun í atvinnuveganefnd, auk þess sem margar umsagnir bárust um það. Gestir voru fengnir á fund frá Landsneti, orkuframleiðslufyrirtækjum, sveitarfélögum, samtökum á vegum sveitarfélaganna og fleiri samtökum. Með frumvarpinu eru lagðar til nokkrar breytingar á raforkulögum og lögum um stofnun Landsnets. Í 1. gr. er lögð til breyting á raforkulögum þess efnis að samþykki á svokölluðum netmálum, þ.e. reglum Landsnets um kerfisstjórnun, færist frá ráðherra til Orkustofnunar. Einnig er skýrar kveðið á um gildissvið reglnanna svo þær nái yfir almenna skilmála sem eru nauðsynlegir fyrir rekstur og stýringu flutningskerfisins. Í 2.–4. gr. er lagt til að vísað verði til stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku, til viðbótar við þá stefnu sem þegar er vísað til og er frá árinu 2015, þ.e. stefnu stjórnvalda um lagningu raflína. Þá er í 5. gr. lögð til sú uppfærsla að í stað þess að vísað sé til samkeppnisráðs í 27. gr. laganna verði vísað til Samkeppniseftirlitsins. Í 6. gr. er lagt til að orkumálastjóri skili skýrslu til ráðherra um framkvæmd raforkueftirlits til viðbótar við skýrslu með rekstrarupplýsingum vegna raforkueftirlits eins og gildandi lög mæla fyrir um. Þessi breyting er lögð til í kjölfar ábendinga frá Eftirlitsstofnun EFTA.
Sú breyting á lögum um stofnun Landsnets sem mælt er fyrir um í frumvarpinu felur í sér að 3. gr. þeirra laga falli brott, en þar er kveðið á um að ráðherra fari með eignarhlut ríkisins í Landsneti og skipi stjórn þriggja manna án tilnefningar.
Verði frumvarpið að lögum munu ákvæði laga um hlutafélög eiga við um skipun stjórnar Landsnets og er fyrirhugað að breyta samþykktum fyrirtækisins þannig að stjórnarmenn verði fimm.
Við umræðu um málið í nefndinni var því hreyft að vert væri að endurskoða fleiri atriði í löggjöf sem varðar raforkumarkað, þar með talið ákvæði er varða tekjumörk flutningsfyrirtækisins, eignarhald Landsnets, samkeppni og upprunaábyrgðir. Ekki var tekin bein afstaða til þess en nefndarmenn eru sammála um að umræðu um eignarhald Landsnets þurfi að taka upp í þeirri endurskoðun.
Í flutningskerfi raforku hvílir almennt sú skylda á viðskiptavinum að greiða fyrir uppbyggingu og rekstur flutningskerfisins á grundvelli gjaldskrár flutningsfyrirtækisins. Í fyrri málslið 10. mgr. 12. gr. a raforkulaga er kveðið á um svonefnt jákvætt kerfisframlag, þ.e. að ef tenging nýrra virkjana eða stórnotenda við flutningskerfi veldur auknum tilkostnaði annarra notenda þess skuli krefjast greiðslu. Markmiðið er að vernda viðskiptavini flutningskerfisins gegn hækkunum vegna tengingar óhagstæðra nýrra aðila þannig að sá sem veldur umframkostnaði verði að bera hann. Í síðari málslið sömu greinar er mælt fyrir um svonefnt neikvætt kerfisframlag þar sem kveðið er á um að taka skuli tillit til þess ef tengingin við flutningskerfið leiðir til hagkvæmari uppbyggingar eða nýtingar þess. Samkvæmt þessu getur þurft að greiða til þess aðila sem tengist flutningskerfinu á hagkvæmum stað. Nefndin telur að markmiðum um hagkvæmni í flutningskerfinu verði náð með ákvæði um jákvætt kerfisframlag og leggur til að síðari málsliður 10. mgr. 12. gr. a raforkulaga falli brott, með öðrum orðum að taka út ákvæði um neikvætt kerfisframlag.
Í mörgum umsögnum sem bárust nefndinni er komið inn á eignarhald Landsnets, eins og fyrr segir, sem er í yfir 60% eigu Landsvirkjunar sem margir telja óheppilegt. Fyrir liggja úttektir og skýrslur um framangreint, þar með talin skýrsla Ríkisendurskoðunar frá 2015 um Landsnet hf., hlutverk, eignarhald og áætlanir. Ríkisendurskoðun skilaði eftirfylgniskýrslu í febrúar sl. þar sem fram kom að í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti hefði verið tekið undir ábendingu um að tryggja þyrfti sjálfstæði Landsnets gagnvart aðilum á raforkumarkaði og að ráðuneytið hefði til skoðunar að fyrirtækið yrði í beinni eigu ríkisins og/eða sveitarfélaga en ekki orkufyrirtækja í þeirra eigu. Lengi hefur verið rætt um að gera breytingar á eignarhaldi Landsnets en það krefst nokkurs aðdraganda og undirbúnings og telur nefndin rétt að ráðist verði í þá vinnu svo fljótt sem auðið er.
Þetta er í fáum orðum umfjöllun um þetta frumvarp og þessa breytingu sem er kannski ekki viðamikil en auðvitað er ýmislegt í henni sem vert er að beina sjónum að. Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt. Allir nefndarmenn skrifa undir nefndarálitið, auk mín sem hér stend eru það Lilja Rafney Magnúsdóttir, Inga Sæland, Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, Ásmundur Friðriksson, Kolbeinn Óttarsson Proppé, Sigurður Páll Jónsson og Álfheiður Eymarsdóttir.
Þá hef ég ekki fleiri orð um þetta.