148. löggjafarþing — 54. fundur,  24. apr. 2018.

raforkulög og stofnun Landsnets hf.

115. mál
[19:09]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg):

Virðulegur forseti. Ég ætlaði ekki að hafa mörg orð um þetta mál en þar sem ég sé að ég hef 20 mínútur, og ekki þarf ég að eyða þeim í kvöldverðarhlé, nýti ég þær kannski bara í að ræða þetta mál aðeins hér. Það þarf ekki að koma neinum á óvart að ég styðji þetta nefndarálit enda stend ég að því, eins og hv. framsögumaður Halla Signý Kristjánsdóttir kom inn á.

Mig langar að koma hér upp, ég tala nú ekki um fyrst slíkir höfðingjar eru komnir í salinn sem raun ber vitni, til að hnykkja aðeins á því sem hv. framsögumaður kom inn á í sinni ágætu ræðu er lýtur að eignarhaldi Landsnets. Það er sammerkt með mörgum þeim umsögnum sem við í hv. atvinnuveganefnd fengum, og þar af leiðandi með mörgum þeirra gesta sem okkur heimsóttu, að kalla eftir að fram fari einhvers konar endurskoðun á eignarhaldinu. Eins og fram kemur í nefndarálitinu er sérstaklega vísað til þess að Ríkisendurskoðun gerði úttekt á Landsneti árið 2015 þar sem m.a. var komið inn á það hversu óheppilegt fyrirkomulag eignarhaldsins væri. Í febrúar sl. var svo skilað inn eftirfylgniskýrslu. Eins og hv. framsögumaður kom inn á telur Ríkisendurskoðun þar ekki tilefni til að ítreka ábendingar sínar þar sem fram kom að í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti hefði verið tekið undir ábendingu um að tryggja þyrfti sjálfstæði Landsnets gagnvart aðilum á raforkumarkaði og að ráðuneytið hefði til skoðunar að fyrirtækið yrði í beinni eigu ríkis og/eða sveitarfélaga en ekki orkufyrirtækja í þeirra eigu.

Ég ætla að nýta örstuttan tíma í að koma aðeins betur inn á þetta. Ég hef oft talað á þessum stað um þörf fyrir stærri sýn þegar kemur að raforkumálum Íslendinga. Ég ætla bara að leyfa mér að vera bjartsýnn, eins og mér er eðlislægt, og segja að við stöndum á ákveðnum þröskuldi hvað þetta varðar. Hæstv. ríkisstjórn er búin að leggja fram, og annaðhvort boða eða skipa í nefndir, töluvert af verkefnum sem lúta einmitt að því að teikna upp þessa stærri mynd. Það er afskaplega ánægjulegt. Í stjórnarsáttmálanum er talað um eigendastefnu fyrir Landsvirkjun. Við erum í hv. atvinnuveganefnd með stefnu um uppbyggingu flutningskerfis raforku. Þessa dagana er verið að skipa þverpólitíska nefnd um langtímaorkustefnu. Við afgreiddum í fyrra, ef ég man rétt, þingsályktun um orkuskipti í samgöngum. Svo má lengi telja.

Við erum á þeim stað að við erum að fara að líta á orkubúskap þjóðarinnar sem stærri heild frekar en að við hugsum um einstaka geira hans og hvernig megi nýta þá sem best. Vissulega þarf að gera það líka, en fyrst þarf að horfa til heildarinnar og hvernig við komum þessum orkubúskap best fyrir. Þetta frumvarp um breytingu á raforkulögum og lögum um stofnun Landsnets hf. eitt og sér er ekki stærsti bitinn í því púsli, en mjór er mikils vísir. Ég fagna þessu því að mér finnst metnaðarfullt hvernig hæstv. ríkisstjórn ætlar að standa að öllum þeim málum er varða orkubúskapinn. Ég fagna því að í hæstv. ráðuneyti hafi Ríkisendurskoðun fengið þau svör að sú vinna væri hafin þegar kæmi að eigendastefnu fyrir Landsnet. Við höfum örugglega öll skoðun á því hvernig því verður best fyrir komið. Hér er komið inn á að ráðuneytið sé að skoða að fyrirtækið yrði í beinni eigu ríkis og/eða sveitarfélaga sem ég tel heppilegt að við skoðum. Ég hlakka til að fylgjast með þeirri vinnu sem ráðuneytið hefur boðað.