148. löggjafarþing — 54. fundur,  24. apr. 2018.

raforkulög og stofnun Landsnets hf.

115. mál
[19:14]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Ég er kannski á sömu nótum og hv. þingmaður sem stóð hér á undan mér. Í þeirri breytingu á raforkulögunum sem við ræðum hér er eignarhaldið á Landsneti gríðarlega mikilvægt atriði, stórt og mikið framtíðarverkefni sem fer væntanlega fram á næstu misserum. Ég vildi bara rétt koma hingað og tæpa á því hversu mikilvægt málið er.

Í sumum löndum, eins og komið hefur verið inn á hér, svo sem Svíþjóð, líta menn á orkuflutninginn sem gríðarlega mikilvægt atriði. Það hefur komið fram í nefndinni að ráðuneytið í Svíþjóð sem fer með meginorkuflutningskerfið er varnarmálaráðuneytið. Það sýnir hversu alvarlegum augum menn líta málið. Við förum vonandi í þetta sem allra fyrst og það er ánægjulegt að sjá að við erum að fara að vinna langtímaorkustefnu, huga að eigendastefnu Landsvirkjunar, málefni sem kemur væntanlega inn á næstu mánuðum, og síðan er þetta gríðarlega stóra og mikla mál sem er uppbygging á meginorkuflutningskerfinu sem er grundvallarmálefni í nýtingu orku í landinu og framtíðaruppbyggingu atvinnulífs á Íslandi.

Ég ætla ekki að fara með langa ræðu um þetta en vildi rétt koma hingað og fagna því að þetta sé að koma fram hérna og síðan umræðunni um þessa hluti sem við eigum eftir að takast á við á næstu misserum.