148. löggjafarþing — 54. fundur,  24. apr. 2018.

vátryggingastarfsemi.

247. mál
[19:26]
Horfa

Frsm. efh.- og viðskn. (Óli Björn Kárason) (S):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016. Frumvarpinu er ætlað að innleiða þau ákvæði tilskipunar 2014/51/ESB, sem breytti m.a. tilskipun 2009/138/EB, sem ekki hafa þegar verið lögleidd hér á landi. Breytingarnar nú miða einkum að því að uppfæra lög um vátryggingastarfsemi vegna valdheimilda Evrópsku vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnunarinnar sem tóku gildi með lögum um evrópskt eftirlitskerfi á fjármálamarkaði, nr. 24/2017.

Í umsögn Fjármálaeftirlitsins, sem kom að gerð frumvarpsins, er bent á að líklega hafi misfarist að innleiða 6. mgr. 39. gr. tilskipunar 2009/138/EB sem varðar opinberar tilkynningar um yfirfærslu vátryggingastofns þegar vátryggingaráhættan er staðsett hér á landi. Leggur stofnunin til að úr þessu verði bætt nú og viðeigandi málsgrein bætt við 34. gr. laganna. Í samráði við ráðuneytið leggur nefndin til breytingu á frumvarpinu þar að lútandi. Fylgir breytingin með þessu nefndaráliti.

Þess má geta að Samtök fjármálafyrirtækja gerðu í umsögn sinni athugasemd við ósamræmi milli orðalags 9. gr. frumvarpsins og þeirra athugasemda sem gerðar eru við greinina í greinargerð, þar sem orðalag greinarinnar sé víðtækara en orðalag athugasemda. Ábendingin er réttmæt að mati nefndarinnar en eftirgrennslan hefur leitt í ljós að ætlunin var ekki að krafa ákvæðisins um fyrirframsamþykki Fjármálaeftirlitsins einskorðaðist við lækkun á hlutafé, heldur skyldi hún ná til allra ákvarðana er leiða til lækkunar á gjaldþolsliðum vátryggingafélags.

Að öðru leyti vísa ég til nefndarálitsins.

Undir nefndarálitið rita allir nefndarmenn efnahags- og viðskiptanefndar, hv. þm. Óli Björn Kárason, Þorsteinn Víglundsson, Brynjar Níelsson, Bryndís Haraldsdóttir, Helgi Hrafn Gunnarsson, Oddný G. Harðardóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Silja Dögg Gunnarsdóttir. Ólafur Ísleifsson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, styður þetta álit.