148. löggjafarþing — 54. fundur,  24. apr. 2018.

vestnorrænt samstarf um menntun í sjávarútvegsfræðum.

117. mál
[19:54]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Bryndís Haraldsdóttir) (S):

Frú forseti. Við ræðum hér aðra þingsályktunartillögu frá Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins, en hún hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að kanna möguleikann á samstarfi milli Íslands, Færeyja og Grænlands um menntun í sjávarútvegsfræðum.“

Hv. utanríkismálanefnd hefur fjallað um tillöguna og fengið á sinn fund Guðjón S. Brjánsson, formann Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins, Sigurð Ólafsson, framkvæmdastjóra Vestnorræna ráðsins, Bylgju Árnadóttur, ritara Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins, og Ólaf Grétar Kristjánsson frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

Með tillögunni er ríkisstjórn Íslands hvött til að kanna möguleika á samstarfi milli Íslands, Færeyja og Grænlands um menntun í sjávarútvegsfræðum. Tillagan er lögð fram á grundvelli ályktunar Vestnorræna ráðsins nr. 2/2017 sem samþykkt var á ársfundi ráðsins 1. september 2017 hér í þessum sal.

Í greinargerð kemur m.a. fram að Vestur-Norðurlöndin eigi nú þegar gott samstarf á sviði sjávarútvegsmála og að með auknu samstarfi á vettvangi sjávarútvegsfræða gætu löndin deilt með sér reynslu og þekkingu á fiskvinnslu. Menntun í fisktækni sem stuðlar að bættri nýtingu sjávarafurða og hvetur til nýsköpunar í atvinnugreininni er t.d. í boði í Fisktækniskóla Íslands í Grindavík, INUILI í Narsaq á Grænlandi og á menntaskólastigi í Færeyjum. Með skiptinámi milli landanna væri hægt að bjóða upp á fjölbreytta grunnmenntun í fiskveiðum, fisktækni og gæðaeftirliti með áherslu á starfsnám. Framhaldsmenntun í sjávarútvegi er t.d. í boði í BS-námi í sjávarútvegsfræðum í Háskólanum á Akureyri, diplómanámi í fisktækni við ARTEK – fisktæknimiðstöðina í Sisimiut og í Sjávarútvegsháskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi.

Nefndin tekur undir að samstarf um menntun í sjávarútvegsfræðum geti gagnast öllum þremur löndunum þar sem þau búa yfir sérþekkingu á ólíkum málefnasviðum innan sjávarútvegsins.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.

Undir nefndarálitið rita formaður hv. utanríkismálanefndar, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Ari Trausti Guðmundsson, Álfheiður Eymarsdóttir, Logi Einarsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Gunnar Bragi Sveinsson og sú sem hér stendur, Bryndís Haraldsdóttir.

Auk þess hefur áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins, Inga Sæland, lýst sig samþykka áliti þessu.

Mig langar jafnframt að geta þess í ræðu minni að þetta er tillaga sem Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins bar upp á ársfundinum sem haldinn var sl. haust og fór þá fram í fyrsta skiptið í þingsalnum okkar. Við í Íslandsdeildinni lögðum áherslu á þetta mál og fengum það samþykkt á þessum aðalfundi. Ég hygg að við höfum öll verið sammála um að ef við getum unnið vel saman einhvers staðar væri það örugglega á sviði sjávarútvegsmála og mennta- og fræðslumála.