148. löggjafarþing — 54. fundur,  24. apr. 2018.

rannsóknir á örplasti í lífverum sjávar í Norður-Atlantshafi.

120. mál
[20:26]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég fagna þeirri þingsályktunartillögu sem hér er komin fram og styð eindregið að hún verði samþykkt á Alþingi. Plast er að mörgu leyti dæmigerð og kannski táknræn afurð 20. aldarinnar, jafn gömul henni, kemur upphaflega fram í byrjun 20. aldar. Undraefni, ótrúlega þénugt og þægilegt, og náði smám saman að ryðja út öðrum efnum í hvers kyns atvinnurekstri og hönnun og framleiðslu.

Það er síðan verkefni okkar 21. aldar fólks að finna út úr því hvernig þetta efni virkar í raun og veru á umhverfi okkar, hvaða afleiðingar það hefur og hvernig við förum að því að takast á við þær. Svo vísað sé í alþekkt ljóð hins góða skálds Gyrðis Elíassonar, með leyfi forseta, þá höfum við lifað „á gullöld plastpokans“. Hún er nú liðin. Það er samt langur vegur frá því að plastið sé að eyðast. Það er nánar tiltekið um alla jörð. Það flýtur um heimshöfin enda með afbrigðum létt og svo sterkt að það eyðist ekki. Það virðir enga landhelgi og má einu gilda hvar það fer í sjóinn, það rekst um víðan sjá, eins og þangið í ljóði Jóhanns Sigurjónssonar.

Komið hefur m.a. fram að hætta kann að vera á því að meira verði af plasti í sjónum en fiskum strax árið 2050.

Það er ástæða fyrir Íslendinga að gefa þessu sérstakan gaum því landið er umlukið hafi og þjóðin lifir á hafsins gjöfum. Hreinsun hafsins af mengun og úrgangi frá mannlegri starfsemi ætti að vera forgangsmál íslensku þjóðarinnar og löngu er tímabært almennt talað að landsmenn marki sér skýra stefnu í málefnum hafsins hvað varðar mengun og auðlindir og þá hættu sem af þessum auðlindum kann að steðja, bæði í samgöngum, með olíuvinnslu og úrgangi.

Þjóðir heimsins eru að vakna. Víða um lönd hefur orðið vitundarvakning á þessu sviði og öðrum sviðum umhverfismála. Það er ekki lengur viðkvæðið hjá nokkrum manni að lengi taki sjórinn við heldur er að renna upp fyrir okkur að sjórinn er ekki gagnaeyðing sjálfrar náttúrunnar. Sjálft lífið á jörðinni er komið undir heilbrigði hafsins og heilbrigði hafsins er m.a. komið undir því hvernig við mennirnir umgöngumst það. Við sjáum þessa vitundarvakningu ekki síst meðal almennings hér á Íslandi. Það líður vart sú vika að við verðum ekki vör við einhvers konar átak til að hreinsa umhverfið af plasti. Það fara hópar sjálfboðaliða um fjörur og annan víðavang og tína upp plastdrasl sem á vegi þeirra verður. Þetta er frábært. Það verður ekki nógsamlega borið lof á þessa viðleitni og sterku vitund um áhrif okkar og ábyrgð á umhverfinu. En best af öllu væri samt að þetta plast væri ekkert þarna. Æskilegast væri ef okkur tækist að draga úr magni þess plastrusls sem til fellur, bæði á hafi úti og líka í starfsemi á landi, t.d. byggingarstarfsemi og sjávarútvegi og landbúnaði, svo nefndar séu atvinnugreinar þar sem mjög væri hægt að draga úr plastnotkun og ófullnægjandi frágangi á þessu efni þegar það hefur þjónað meintum tilgangi sínum. Að ógleymdu því að tilvalið væri auðvitað ef Alþingi myndi samþykkja þingsályktunartillögu sem ég hef lagt fram um að bann verði lagt við plastpokanotkun í verslunum og framleiðendum og innflytjendum gert skylt að merkja þær vörur þar sem plastagnir er að finna.

Plastmengun er um þessar mundir ein mest vaxandi ógn við heilbrigði sjávar. Í janúar 2016 var samþykkt stefna um plast hjá Evrópusambandinu þar sem er sérstaklega beint sjónum að mengun í hafi vegna plasts og plastagna. Raunar er það svo að ekki eru öll kurl komin til grafar með áhrif plastagna á umhverfi og dýr og heldur ekki áhrif aukins magns plasts í fæðukeðjunni á menn. Rannsóknir benda þó til þess að full ástæða sé til að hafa af því áhyggjur. Það getur tekið plast upp undir 400 ár að hverfa og leysast upp en þar með er ekki sagt að það eyðist því eftir verða plastagnirnar, örplastið, plastagnir sem smjúga alls staðar inn í vistkerfið með ófyrirséðum afleiðingum fyrir lífheildina og fyrir sjávardýr og fyrir mannfólk.

Nú þegar hafa rannsóknir sýnt að plastagnir eru í drykkjarvatni, að meðaltali ein plastögn í hverjum tíu lítrum af vatni. Nýlega kom fram að um 80% af því rusli sem safnað var við Miðjarðarhaf hafi verið plastagnir en stór hluti þeirra kemur úr illa hreinsuðu affallsvatni.

Við eigum á hættu, virðulegi forseti, að plánetan verði plastneta. Það er ljóst að runninn er upp tími aðgerða í þessum efnum. Við þurfum að draga úr notkun plasts hvar sem því verður við komið. Samhliða því er þörf á að rannsaka áhrif plasts á lífríkið í kringum okkur og leita leiða til að draga úr þeim eins og kostur er. Þessi tillaga þar sem skorað er á ríkisstjórnina að hefja samstarf við landsstjórnir í Færeyjum og Grænlandi um rannsóknir á örplasti í sjávarlífverum og útbreiðslu plastmengunar í Norður-Atlantshafinu er skref í rétta átt. Ég styð hana eindregið.