148. löggjafarþing — 54. fundur,  24. apr. 2018.

rannsóknir á örplasti í lífverum sjávar í Norður-Atlantshafi.

120. mál
[20:36]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Mig langaði að blanda mér örlítið í þessa umræðu. Ánægjulegt er að heyra hvað allir hér eru einhuga um þetta mikilvæga mál sem varðar heilbrigði okkar helstu auðlindar, hafsins. Það er kannski ekki síst á þeirri forsendu að ég tel mikilvægt að þær þjóðir sem mynda Vestnorræna ráðið sameinist um þetta. Ég tek þó heils hugar undir það sem fram kom hjá framsögumanni nefndarálitsins, Ara Trausta Guðmundssyni, að það eru auðvitað margar stofnanir og mörg ríki sem eru að vinna í þessum málum. Kannski eru þau ríki sem hér um ræðir ekki stærst og megnugust að standa í miklu rannsóknum, en ég lít ekki síst þannig á að þau séu ákveðnir talsmenn heilbrigðis hafsins.

Ég tel mikilvægt að hafrannsóknastofnanir okkar rannsaki málið er ekki síður að þær haldi utan um þær rannsóknir sem unnið er að á þessum vettvangi, fræði okkur um þær og tali máli hafsins, ef svo má segja, á alþjóðlegum vettvangi. Ég hef rekið mig á það í störfum mínum fyrir Vestnorræna ráðið en líka í öðru alþjóðasamstarfi að það skiptir mjög miklu máli hvað við segjum. Ég get til að mynda nefnt rannsóknaráætlun Evrópusambandsins, sem er náttúrlega stór og víðtæk áætlun er lýtur að rannsóknum og nýsköpun og öðru, og Íslendingar hafa fullan aðgang að henni. Þegar Malta var þar í forsæti lögðu þau mikið upp úr því sem á ensku kallast „blue economy“ eða bláa hagkerfið og það skilaði sér inn í rammaáætlunina. Það er eðlilegt að áherslur breytist eftir því hvaða ríki eru í forsæti. Það kann að vera að þegar ekki er um að ræða þjóð sem á jafn mikið undir sjávarútvegi að áherslan verði ekki jafn mikil á þann þátt. Þar held ég t.d. að rödd okkar Íslendinga skipti miklu máli þegar verið er að ræða við Evrópusambandið um mikilvægi þess að við séum með öfluga rannsóknarsjóði og -starf um heilbrigði hafsins.

Ég fagna þessari þingsályktunartillögu og hversu jákvæðir þingmenn í garð hennar en tek líka undir þau sjónarmið sem fram hafa komið að hér er auðvitað um risastórt mál að ræða og við þurfum svo sannarlega að ræða það oftar og í víðara samhengi á þessum vettvangi.