148. löggjafarþing — 55. fundur,  25. apr. 2018.

Frestun á skriflegum svörum.

[15:00]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hefur bréf frá fjármála- og efnahagsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 729, um opinber störf utan höfuðborgarsvæðisins, frá Höllu Signýju Kristjánsdóttur.

Einnig hefur borist bréf frá utanríkisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 384, um ráðherrabíla og bílstjóra, frá Birni Leví Gunnarssyni.