148. löggjafarþing — 55. fundur,  25. apr. 2018.

störf þingsins.

[15:23]
Horfa

Fjölnir Sæmundsson (Vg):

Herra forseti. Á haustmánuðum árið 2016 var samþykkt á Alþingi að heimila ríkisstjórninni að fullgilda samning Sameinuðu þjóðanna um fatlað fólk. Við sama tilefni ályktaði Alþingi að valkvæður viðauki við samninginn skyldi fullgiltur fyrir árslok árið 2017. Fullgildingin á þessum viðauka hefur ekki enn orðið nú í apríl 2018. Valkvæði viðaukinn mælir fyrir um kæruleiðir fyrir einstaklinga og hópa sem telja að íslensk stjórnvöld hafi ekki veitt þeim þann rétt sem þeim ber samkvæmt samningnum.

Kæruleiðin er möguleg eftir að fólk hefur nýtt sér þau úrræði sem það hefur samkvæmt íslenskum lögum til að ná fram því sem það telur sig eiga rétt á samkvæmt samningnum. Með fullgildingu valkvæða viðaukans verður virkara aðhald með ríkjum um að framfylgja samningnum. Réttaröryggi fatlaðs fólks verður meira og mannréttindi þess betur varin.

Auðvitað væri bestur bragur á því að Alþingi lögfesti einfaldlega samninginn um fatlað fólk líkt og gert var með samninginn um réttindi barna árið 2013. Með lögfestingu væru mannréttindi fatlaðs fólks best tryggð. Það fengi aukna vernd og réttaröryggi þess myndi aukast til muna. Lögfesting samningsins myndi senda skilaboð til almennings, stjórnsýslunnar og allra þeirra aðila sem fjalla um málefni fatlaðs fólks um virðingu sem ætlast sé til að fötluðu fólki sé sýnd í réttarríki.