148. löggjafarþing — 55. fundur,  25. apr. 2018.

framtíð og fyrirkomulag utanspítalaþjónustu og sjúkraflutninga.

[15:46]
Horfa

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. málshefjanda Vilhjálmi Árnasyni fyrir að setja þetta mikilvæga mál á dagskrá. Við verðum að geta treyst því að utanspítalaþjónusta sé öflug og örugg. Þannig verðum við að tryggja að bæði menntun þeirra sem starfa innan hennar og þjálfun sé eins góð og mögulegt er og að sama skapi tryggja að fullnægjandi aðstoð berist á sem stystum tíma ef alvarleg veikindi eða slys ber að höndum.

Eitt af því mikilvægasta í því samhengi er þörfin fyrir að koma á rafrænni skráningu í sjúklingameðferð þannig að hægt sé að koma á miðlægri einingu eins og hv. málshefjandi kom inn á áðan og tryggja þannig læknisfræðilega umsjón utanspítalaþjónustu. Þá gæti sjúkraflutningafólk hvar sem er á landinu haft samband í tengslum við verkefni og fengið ráðgjöf við meðferð eða leiðbeiningar um framhaldsmeðferð og jafnvel tekið ákvörðun um að kalla út sjúkraflug eða þyrlu mun fyrr en tíðkast í dag.

Herra forseti. Þessu tengt þá hefur Slökkvilið Akureyrar undanfarin ár þjónustað Sjúkrahúsið á Akureyri með svokölluðum millistofnanaflutningi samkvæmt samningi Akureyrarbæjar og Sjúkratrygginga Íslands um sjúkraflutninga. Nú er svo komið að samningur milli Sjúkratrygginga Íslands og Akureyrarkaupstaðar er runninn út og mun Slökkvilið Akureyrar hætta að veita þessa þjónustu frá og með 1. maí nk. ef ekki nást samningar um greiðslur.

Að því er kemur fram í bréfi Eiríks Björns Björgvinssonar, bæjarstjóra á Akureyri, til framkvæmdastjóra Sjúkrahússins á Akureyri, dags. 22. febrúar sl., vill slökkviliðið á Akureyri gjarnan veita þessa þjónustu áfram. Þessir millistofnanaflutningar eru ekki síður mikilvægir en bráðaflutningar, en þeir koma sjúklingum suður á Landspítala í sérhæfðari meðferð, en létta einnig á Landspítala með flutningi sjúklinga norður.

Mig langar að nýta þetta tækifæri þar sem við erum að ræða sjúkraflutninga og spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra um stöðu þessa máls og hvort ekki eigi að leysa það og ganga frá samningum eða hvort hæstv. ráðherra sér fyrir sér að málið verði leyst á annan hátt.