148. löggjafarþing — 55. fundur,  25. apr. 2018.

framtíð og fyrirkomulag utanspítalaþjónustu og sjúkraflutninga.

[16:17]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir afar góða og gagnlega umræðu. Mig langar fyrst að óska hv. þm. Jóni Þór Þorvaldssyni til hamingju með jómfrúrræðu hans.

Að öðru leyti langar mig að nefna nokkur atriði sem komu fram. Hv. þm. Albertína Friðbjörg Elíasdóttir nefndi stöðu mála hvað varðar samspil við Slökkviliðið á Akureyri. Samkvæmt mínum upplýsingum standa núna yfir samningar við Sjúkratryggingar Íslands um það að ekki rofni sú samfella sem þar er fyrir hendi.

Hv. þm. Hanna Katrín Friðriksson spurði sérstaklega um endurmenntun og þjálfun. Sjúkraflutningaskólinn er mjög vakandi fyrir auknum kröfum með aukinni áherslu jafnframt á fjarnám í þessum efnum.

Hv. þm. Oddný Harðardóttir spurði um uppgjör við Rauða kross Íslands varðandi breytingu á því fyrirkomulagi. Þau samskipti ganga vel. Fundur var síðastliðinn mánudag þar sem verið var að kortleggja þau viðfangsefni sem þar eru undir.

Nokkrir þingmenn nefndu samstarf við slökkviliðin, hv. þm. Birgir Þórarinsson þar á meðal. Það er sannarlega þannig að mjög mikil samlegð er með slökkviliðunum og það samstarf á víða mjög vel við. Hins vegar er mikilvægt að halda því til haga að hér er um að ræða heilbrigðisþjónustu númer eitt. Sú starfsemi þarf að vera í forgrunni. Það á hins vegar víða við á þéttbýlissvæðum, bæði á Akureyri og ekki síður á höfuðborgarsvæðinu, að mikil samlegð er bæði í tækjakosti og mönnun í þeim efnum. Það ber að styðja við.

Allmargir þingmenn töluðu um að hér skorti stefnumótun. Hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson talaði sérstaklega um að þetta væri brotakennt eins og það er núna, ég umorða það sem hann sagði. Ég er sammála því. Einmitt þess vegna þurfum við að ná utan um þennan mikilvæga þátt heilbrigðisþjónustunnar. Og lyfta því á þann stað sem því ber og líta á það sem þennan (Forseti hringir.) oft fyrsta snertiflöt við heilbrigðiskerfið, en ekki sem leiðina að heilbrigðiskerfinu, vegna þess að þarna er oft fyrsta snertingin (Forseti hringir.) við heilbrigðisstarfsmann.

Ég þakka annars fyrir afar góða umræðu og tek þessa punkta með mér áfram í stefnumótun.