um fundarstjórn.
Herra forseti. Það er fundur í atvinnuveganefnd á eftir vegna strandveiðifrumvarpsins. Mér skilst að það liggi á því út af dagsetningu sem er 1. maí.
Annað mál hefur verið tekið fyrir á umliðnum dögum í atvinnuveganefnd, þ.e. ákvæði innan búvörusamningsins, þar sem skýr og ríkur vilji Alþingis er til að tollfrjálsir innflutningskvótar verði samkvæmt tvíhliða samningnum sem við Íslendingar gerðum fyrir nokkrum árum við ESB. Nú hefur ráðuneytið auglýst þessa kvóta og er auglýsingin þvert gegn vilja þingsins. Hins vegar hefur komið skýrt fram af hálfu ráðuneytisins og þeirra þingmanna sem stóðu að meiri hluta við samþykkt búvörusamningsins á sínum tíma, að það eigi að laga. Við í nefndinni ætluðum að flytja málið en skilaboð komu úr ráðuneytinu um að ráðherra vildi gera það sjálfur.
Nú er 1. maí á þriðjudaginn, það eru nefndadagar á föstudag og mánudag þannig að ég spyr hæstv. forseta: Hefur komið afbrigði við dagskrána á morgun til forseta þannig að við höfum daginn á morgun til að afgreiða þetta mál svo hægt verði að auglýsa það, þannig að ráðuneytið geti auglýst (Forseti hringir.) kvótana svo það sé í samræmi við ríkan vilja Alþingis við samþykkt búvörusamnings?