148. löggjafarþing — 55. fundur,  25. apr. 2018.

um fundarstjórn.

[17:00]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti vill segja að enn sem komið er hefur þetta mál ekki verið tekið upp við hann. En forseti er að sjálfsögðu tilbúinn að skoða það og gera það strax í framhaldi af þessum orðaskiptum ef svo ber undir. Ég kannast ekki enn við að hafa fengið það á mitt borð, en forseti hefur reyndar verið fjarverandi í nokkra daga, svo það sé nú sagt.