um fundarstjórn.
Hæstv. forseti. Ég þakka fyrir þessa vinsemd og vilja því að þetta skiptir gríðarlega miklu máli. Við erum að tala um mikla hagsmuni neytenda, að þetta mál verði afgreitt fyrir 1. maí. Það er ekki mikill tími en það er algjör samhljómur í nefndinni um að þetta mál verði afgreitt þannig að ekki verði eingöngu auglýst 37 tonn af sérostum sem framleiddir eru á sérstökum svæðum í Evrópu, en eru ekki framleiddir hér heima, að auglýsingin hljóði þá upp á í kringum 140 tonn. Ég þakka fyrir þennan ríka vilja og skilning hæstv. forseta í þessu efni og bind vonir við að þingmenn meiri hlutans, þeir sem eru í ráðuneytinu, komi hér strax með frumvarp þannig að við getum rætt það og afgreitt það strax á morgun. Það er skýr vilji í þinginu. Nýtum hann.