148. löggjafarþing — 55. fundur,  25. apr. 2018.

fjármálafyrirtæki.

387. mál
[17:21]
Horfa

Frsm. efh.- og viðskn. (Óli Björn Kárason) (S):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002 (skuldajöfnun, greiðslujöfnunarsamningar og ógildir löggerningar).

Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á XII. kafla laga um fjármálafyrirtæki en kaflinn fjallar um endurskipulagningu fjárhags fjármálafyrirtækja, slit þeirra og samruna við önnur fjármálafyrirtæki. Nokkrar breytingar hafa orðið á kaflanum frá setningu laganna og með lögum nr. 130/2004 var meginhluti tilskipunar 2001/24/EB, um endurskipulagningu og slit lánastofnana, innleiddur í íslenskan rétt.

Eins og segir í nefndaráliti er talið nauðsynlegt að gera nokkrar breytingar í kjölfar dóma Hæstaréttar, að skýra nánar atriði sem reyndi á varðandi innleiðingu tilskipunarinnar í íslenskan rétt. Efnisreglur frumvarpsins gilda aðeins um fjármálafyrirtæki með höfuðstöðvar á Íslandi og starfsemi í öðru EES-ríki.

Í áðurnefndri tilskipun er kveðið á um að við slitameðferð fjármálafyrirtækis skuli fara eftir lögum heimaríkis þess. Af þessu leiðir að ef fjármálafyrirtæki rekur útibú í öðrum löndum eða á í viðskiptum við fyrirtæki og einstaklinga utan heimaríkisins fer einungis fram ein slitameðferð en ekki margar. Þessi meginregla sætir þó undantekningum vegna eðlis fjármálastarfsemi. Við slit fjármálafyrirtækja hér á landi hefur reynt á samspil meginreglna og undanþága og að hvaða marki reglur íslenskra laga um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991, samrýmast ákvæðum 23., 25. og 30. gr. tilskipunarinnar sem ég hef nefnt áður.

Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar til að skýra nánar þær undantekningar sem gilda frá þeirri meginreglu að lög heimaríkis fjármálafyrirtækis gildi um slit þess og útibúa þess. Annars vegar er lagt til að skýrt komi fram að undir ógildingarreglur í 30. gr. tilskipunarinnar falli einnig riftunarreglur XX. kafla laga um gjaldþrotaskipti og sönnunarbyrði um að um löggerning eigi að gilda önnur lög en lög heimaríkis hvílir á herðum þess er hefur af því hag. Mat á því hvort sönnunin hafi tekist eða ekki fer eftir reglum heimaríkis um sönnun og sönnunarbyrði. Hins vegar er um að ræða reglur sem taka til skuldajöfnunar við slit fjármálafyrirtækis og greiðslujöfnunarsamninga en með þeim er brugðist við athugasemdum Eftirlitsstofnunar EFTA um innleiðingu undantekningarreglna 23. og 25. gr. tilskipunarinnar.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt. Undir nefndarálitið rita sá er hér stendur Óli Björn Kárason, Þorsteinn Víglundsson, Bryndís Haraldsdóttir, Helgi Hrafn Gunnarsson, Hildur Sverrisdóttir, Oddný G. Harðardóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Silja Dögg Gunnarsdóttir. Ólafur Ísleifsson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur þessu áliti.