Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins.
Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti efnahags- og viðskiptanefndar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, nr. 1/1997, með síðari breytingum (hálfur lífeyrir).
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Önnu Valbjörgu Ólafsdóttur og Harald Steinþórsson frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu, auk þess sem nefndinni barst umsögn frá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins um málið.
Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, nr. 1/1997, sem eru nauðsynlegar svo sjóðfélagar í B-deild sjóðsins geti nýtt sér heimild til töku hálfs lífeyris frá 65 ára aldri, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, sem innleidd var í lög um almannatryggingar, nr. 100/2007, með lögum nr. 116/2016, samanber 4. efnismgr. 2. gr. Breytingarnar sem lagðar eru til í frumvarpinu eru tvenns konar. Annars vegar er lagt til að ný málsgrein bætist við 24. gr. laganna um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins sem kveði á um að sjóðfélagi geti ákveðið að hefja töku hálfs ellilífeyris hvenær sem er eftir að 65 ára aldri er náð að því skilyrði uppfylltu að hann sé ekki í meira en hálfu starfi sem veitir aðild að sjóðnum eða hefði veitt rétt til aðildar að sjóðnum fyrir stofnun A-deildar hans. Hins vegar er lögð til sú breyting á 2. málslið 2. mgr. 27. gr. laganna að hlutfall viðbótarréttinda við makalífeyri samkvæmt ákvæðinu miði við starfshlutfall sjóðfélaga þegar taka á hálfum ellilífeyri hófst þegar við á en ekki við starfslok.
Í umsögn Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins um málið kemur fram að lagabreytingin sem frumvarpið kveður á um sé nauðsynleg svo þeir 22.400 einstaklingar sem eiga réttindi í sjóðnum geti nýtt sér rétt til töku hálfs lífeyris frá 65 ára aldri. Sjóðurinn styður því samþykkt frumvarpsins. Í umfjöllun nefndarinnar var þeirri spurningu velt upp hvort tryggt væri að hálft starfshlutfall á móti töku hálfs lífeyris veitti sjóðfélaga í B-deild LSR áframhaldandi ávinnslu í sjóðnum. Hefur nefndin fengið staðfest að svo sé og að 50% starfshlutfall sjóðfélaga í B-deild veiti 1% ávinnslu á ári en 100% starfshlutfall veitir 2% ávinnslu.
Nefndin leggur því til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Virðulegur forseti. Það er rétt að taka fram að það að klára þetta mál er mikilvægt skref í þá veru sem hv. þingmenn og í rauninni þjóðin öll hafa verið sammála um á undanförnum árum, og kannski ekki síst samtök eldri borgara, að stuðla eins kostur er að sveigjanlegum starfslokum. Það er mikilvægt að við klárum þetta mál á þessu þingi, m.a. vegna þess.
Undir nefndarálitið rita Óli Björn Kárason formaður, Ólafur Þór Gunnarsson framsögumaður, Þorsteinn Víglundsson, Bryndís Haraldsdóttir, Helgi Hrafn Gunnarsson, Hildur Sverrisdóttir, Oddný G. Harðardóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Silja Dögg Gunnarsdóttir. Áheyrnarfulltrúi í nefndinni, Ólafur Ísleifsson, er samþykkur þessu áliti.