148. löggjafarþing — 55. fundur,  25. apr. 2018.

ættleiðingar.

128. mál
[17:56]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. framsögumanni allsherjar- og menntamálanefndar, Andrési Inga Jónssyni, kærlega fyrir hans framsögu og vísa bara til hennar og hef ekki mikið meira um málið að segja þannig séð. Hann útskýrði málið vel og fór yfir efni þess og mikilvægi. Mig langar þó að koma á framfæri í ræðu minni kærum þökkum til hv. allsherjar- og menntamálanefndar fyrir góða og skelegga vinnu í þessu þarfa máli og fagna þeirri samstöðu sem um málið náðist þar og vona að slíkt hið sama gerist hér í þingsalnum við frekari meðferð þess.

Þetta mál snýst fyrst og fremst um velferð barna og rétt barnsins. Þetta snýst um að vernda rétt barnsins til að þekkja uppruna sinn. Allt sem við gerum í því skyni, þau lög sem við setjum, fer eftir meginreglu barnalaga, alþjóðasamningum og barnasáttmálanum sem við vinnum eftir; að tryggja rétt barnsins og velferð barnsins, það sem er barninu fyrir bestu.

Ég tel mjög mikilvægt, ef af þessari breytingu verður, að við vinnslu þessara ættleiðingarmála þegar sýslumaður eða eftir atvikum ættleiðingarnefnd, sem kom hér til umræðu áðan í andsvörum, fara yfir þessi mál þá sé alltaf haft að leiðarljósi og tekið mið af því hvað barninu er fyrir bestu, rétti barnsins og vilja barnsins. Það sé alltaf reynt eftir fremsta megni að athuga hver er vilji barnsins. Það fer náttúrlega eftir aldri og þroska þess hverju sinni hversu langt er hægt að ganga í þeim efnum. En hér er um að ræða rétt barnsins til þess að þekkja uppruna sinn. Það kemur fram í öllum samningum, í rannsóknum og öðru að það er best fyrir barnið að alast upp hjá foreldrum sínum og fjölskyldunni og vera í sem bestum tengslum við hana. Eins og hér hefur margoft komið fram er þetta mjög viðkvæmur atburður í lífi barns að missa foreldri, annað eða bæði, og við þurfum að gera allt til þess að tryggja velferð barnsins sem best þegar svoleiðis atvikast.

Það var aðallega þetta sem ég vildi leggja mikla áherslu á um leið og ég þakka fyrir þá góðu vinnu sem hv. allsherjar- og menntamálanefnd lagði í þetta mál. Ég vil líka minna á þau gríðarlegu réttaráhrif sem ættleiðing hefur. Réttaráhrifin eru óafturkræf. Á sama tíma og ættleiðing gengur í gegn þá falla niður öll lagatengsl barnsins við kynforeldra þess, önnur ættmenni og þá sem eru í sifjum við það nema lög kveði öðruvísi á. Það er stórt skref að fara fram á ættleiðingu og hefur mikil áhrif á líf barns. Þess vegna er mjög mikilvægt að þeir sem vinna að slíku máli og fjalla um umsóknir um ættleiðingu og taka afstöðu til þess rannsaki málið vel áður en þeir taka ákvörðun og hafi þá eins og hér hefur áður verið nefnt velferð barnsins að leiðarljósi, hvað er barninu fyrir bestu og virði rétt þess til samskipta við nánustu fjölskyldu og viti vilja barnsins.