148. löggjafarþing — 56. fundur,  26. apr. 2018.

misskipting eigna í þjóðfélaginu.

[10:35]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Það hjálpar einfaldlega ekki því fólki sem á ekki til hnífs og skeiðar og berst í bökkum frá mánuði til mánaðar að hér sé almennt meiri tekjujöfnuður en víðast hvar annars staðar. Staðreyndin er sú að bæði er tekjuójöfnuður of mikill og eignaójöfnuður er sífellt vaxandi vandamál.

Ég vil spyrja hæstv. forsætisráðherra aftur að því hvernig hún hyggist beita sér til að minnka þennan eignaójöfnuð. Varla með því að útfæra fjármagnstekjuskattsbreytingar á þann veg að eignamesta fólkið geti varið sig fyrir verðbólgu ólíkt launafólki.

En síðan er það spurningin: Hvernig hyggst hún koma til móts við þennan fátækasta og verst stadda hóp þjóðarinnar? Mun hún beita sér fyrir hækkuðum barnabótum, vaxtabótum? Mun hún leggjast gegn breytingum á tekjuskatti sem færir þeim efnuðustu, þar á meðal okkur, þrisvar sinnum meiri hagnað en þeim sem lægstar hafa tekjurnar?