148. löggjafarþing — 56. fundur,  26. apr. 2018.

kjör kvennastétta.

[10:41]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að setja hér á dagskrá mjög mikilvægt mál sem lýtur að kynbundnum vinnumarkaði á Íslandi. Hér var til umræðu á síðasta þingi lagafrumvarp um jafnlaunavottun sem var samþykkt sem laut að því að vinna gegn kynbundnum launamun innan fyrirtækja, innan stofnana, en síðan erum við auðvitað með þá stöðu að vinnumarkaðurinn sjálfur er kynbundinn og launamunur kynjanna birtist áfram í gegnum þennan kynbundna vinnumarkað og kynbundið menntunarval.

Hv. þingmaður fór víða í sinni fyrirspurn og nefndi sérstaklega hversu miklu máli það skiptir að efla heilbrigðiskerfi, efla menntakerfi, til þess að standa betur að kvennastéttunum sem m.a. eru mjög áberandi innan heilbrigðiskerfisins og menntakerfisins. Það er algjörlega klárt í fjármálaáætlun þessarar ríkisstjórnar að þar er verið að forgangsraða í þágu heilbrigðiskerfisins. Þar er áþreifanleg stefnubreyting, vil ég segja, til þess að styrkja betur heilbrigðiskerfið og þar með þær stéttir sem þar vinna, sem margar eru kvennastéttir.

Sama vil ég segja um menntakerfið þar sem er verið að horfa til framtíðar. Það er auðvitað undirstaðan líka fyrir atvinnulíf framtíðarinnar að við gerum betur í menntakerfinu og fjárfestum í því.

Þegar kemur að sérstaklega kjörum þessara hópa þá samdist við framhaldsskólakennara í vikunni. Ég fagna því. Ljósmæður sitja á samningafundi núna. Við vitum auðvitað ekki hvaða árangri sá fundur mun skila. En ég vil segja að ég tel mjög mikilvægt að við nálgumst þetta mál með heildstæðum hætti, að við lærum af reynslunni sem við eigum. Það var til að mynda ráðist í átak til að hækka laun kvennastétta vorið 2013 í þeirri ríkisstjórn sem ég sat þá í. Það var gert í gegnum stofnanasamninga. Þegar við metum árangur þeirrar aðgerðar má segja að við getum lært ýmislegt af henni, hún skilaði kannski ekki þeim árangri sem við hefðum viljað sjá til þess að jafna kjör og bæta kjör kvennastétta. Ég tel því að við þurfum að skoða þá aðferðafræði og það samtal er farið af stað, af því að hv. þingmaður (Forseti hringir.) spyr hvort þetta hafi verið rætt á milli mín og fjármálaráðherra. Það samtal og sú skoðun fer af stað. Við þurfum til að mynda (Forseti hringir.) að læra af því sem Reykjavíkurborg hefur verið að gera í gegnum starfsmat sem þar hefur verið innleitt sem ætlunin er (Forseti hringir.) að nýta til þess að bæta kjör kvennastétta.