kjör kvennastétta.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svarið. Forsætisráðherra kom inn á jafnlaunavottun og ég skil alveg, þar sem VG er með valdaflokkunum, eins og hæstv. heilbrigðisráðherra talaði um, að erfitt sé að koma ákveðnum málum, sérstaklega þeim er tengjast jafnrétti, í gegnum ríkisstjórnina þegar þeir flokkar eru annars vegar. Við munum auðvitað styðja forsætisráðherra í því að koma fram með þessar áherslur, en mér fannst hæstv. forsætisráðherra ekki svara því nægilega vel hvaða áherslur ríkisstjórnin muni setja inn í kjarasamningana.
Ég tek heils hugar undir með forsætisráðherra, það þarf að nálgast þetta með heildstæðum hætti. Það þarf að horfa til lengri tíma, það þarf að ramma inn nákvæmlega hvernig við ætlum að hlúa að kvennastéttunum, bæta kjör kennara, ljósmæðra, hjúkrunarfræðinga og gera það til lengri tíma þannig að það verði varanlegt, læra svolítið af reynslunni. Þess vegna hvet ég hæstv. forsætisráðherra til að ljá máls á þeirri þingsályktunartillögu sem þingmenn Viðreisnar hafa sett fram til þess að jafna kjör kvennastétta.
Við þurfum að horfa til lengri tíma og við þurfum að gera það m.a. með það í huga að styrkja menntakerfið, styrkja heilbrigðiskerfið, styrkja velferðarkerfið. Þess vegna (Forseti hringir.) þurfum við að taka sérstaklega utan um kjör kvennastétta. Ég fagna því sérstaklega ef hæstv. forsætisráðherra ætlar að taka forystu um þetta mál því að forystu er óskað þar. Hún kemur ekki frá fjármálaráðuneytinu þegar kjör kvennastétta eru annars vegar.