148. löggjafarþing — 57. fundur, 26. apr. 2018.
félagsþjónusta sveitarfélaga.
27. mál
Virðulegi forseti. Við erum að samþykkja hérna mjög gott mál. Það sem er aðalatriðið í því er að þetta er fyrsta skrefið í að fullgilda samning Sameinuðu þjóðanna um fatlað fólk. Síðan er viðaukinn eftir. Ég geri það að tillögu minni að við komum þessum málum til velferðarnefndar og vinnum það þar eins og við unnum þetta mál. Þá er hægt að gera þetta bara einn, tveir og þrír. Það er það sem við eigum að stefna að, að sjá til þess að fatlað fólk fái öll þau réttindi sem aðrir hafa, og það strax.