raforkulög og stofnun Landsnets hf.
Virðulegur forseti. Þetta er svo sem ekki stórt mál í umfangi. En mig langar að koma inn á þætti sem ég kom inn á í 2. umr. til að undirstrika það, eins og kemur fram í nefndaráliti atvinnuveganefndar með málinu, að það er ríkur vilji til að endurskoða eignarhald á Landsneti. Margir umsagnaraðilar komu inn á það. Eins og komið hefur fram í eftirfylgniskýrslu Ríkisendurskoðunar varðandi athugasemdir er slík vinna þegar hafin. Ég hvet ríkisstjórnina og ráðherra til dáða í þeim efnum og að við hér í þessum þingsal tökum þátt í þeim leiðangri að endurskoða eignarhald Landsnets eins og þar er komið inn á í nefndarálitinu.