148. löggjafarþing — 57. fundur,  26. apr. 2018.

siðareglur fyrir alþingismenn.

443. mál
[15:14]
Horfa

Flm. (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Varðandi flutningsmenn eru þeir, eins og ég hélt að hefði komið fram í framsöguræðu minni, allir forsætisnefndarmenn og áheyrnarfulltrúar þeirra flokka sem ekki eiga fast sæti í forsætisnefnd. Þess vegna eru nöfnin talin upp, flutningsmenn eru fleiri en forseti og varaforsetar, sem sagt níu hv. þingmenn sem saman skipa forsætisnefnd og áheyrnarfulltrúa.

Í öðru lagi: Það sem hv. þingmaður nefnir um nýtt þing og eftir atvikum nýjar reglur eða hvernig með er farið ef breytingar verða á reglunum er það að sjálfsögðu nokkuð sem er rétt og skylt að ræða. Augljóslega er gengið út frá því að allir nýir þingmenn sem ekki hafa áður setið á þingi og ekki áður undirritað siðareglur geri það þegar þeir taka sæti. Eins er að ef breytingar verða á reglunum er rétt að kynna þær og gefa þær út að nýju. Menn geta þá velt upp þeirri spurningu hvort ekki sé rétt að allir staðfesti reglurnar upp á nýtt þar sem inntak þeirra hafi tekið breytingum.

Ég hef einmitt hugsað mér að biðja stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að fara yfir nokkra þætti af þessu tagi, þar á meðal hvort ekki sé einboðið að gera það að fortakslausri skyldu að allir sem taka sæti á Alþingi skuli kynna sér og undirrita siðareglurnar jafnskjótt og þeir taka sæti. Með öðrum orðum þýðir það að fara þarf aðeins yfir það hvernig reglum hefur verið háttað um t.d. varaþingmenn þegar þeir koma inn.

Varðandi þriðja atriðið eru siðareglurnar að þessu leyti mjög skýrar. Berist forsætisnefnd Alþingis rökstutt erindi um meint brot á siðareglum sem uppfylli þau skilyrði sem slík erindi þurfa að uppfylla, þ.e. tilgreinir hið meinta brot og færir fyrir því rök að það hafi átt sér stað, er forsætisnefnd skylt að taka það fyrir. En það er vissulega í hennar höndum hvert framhald málsins verður, (Forseti hringir.) hvort því er vísað áfram til ráðgjafarnefndar eða hvernig það er leitt til lykta.