148. löggjafarþing — 57. fundur, 26. apr. 2018.
siðareglur fyrir alþingismenn.
443. mál
Herra forseti. Ég þakka hæstv. forseta þetta innlegg og er hjartanlega sammála og ítreka það sem ég segi, að ég hef þær væntingar að þessi breyting, og innleiðing og kynning á henni, verði til þess að við sköpum hér þá menningu að löggjafarþing Íslands verði leiðandi í þessum málum frekar en að vera að elta.