148. löggjafarþing — 57. fundur,  26. apr. 2018.

siðareglur fyrir alþingismenn.

443. mál
[15:36]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir þessar tillögur til breytinga á siðareglum fyrir alþingismenn. Ég held að við séum að stíga þarna mikilvægt skref í átt að betri vinnubrögðum. Ég held einnig að við séum að sýna öllum almenningi, öllum íbúum og umheiminum, að okkur er full alvara með fundi okkar, rakarastofufundinum, með viðhorfum okkar gegn kynbundnu ofbeldi sem við svo sannarlega höfum viljað senda frá okkur opinberlega, bæði hvað varðar stjórnvöld sem og félagasamtök. Ég held að það skipti mjög miklu máli að það komi skýr skilaboð héðan frá þinginu um að svona hegðun, svona framkoma, sé ekki liðin.

En það eru nokkrir hlutir sem ég tel mikilvægt að við ræðum hér. Þá kannski fyrst hvað það varðar hvernig við ætlum að taka á þessum siðareglum. Ef brotið er gegn siðareglum, hvað þá? Við fengum nýlega skýrslu GRECO um varnir gegn spillingu. Í þessari nýjustu skýrslu er verið að fjalla um æðstu handhafa framkvæmdarvalds sem og lögreglu. Þar er einmitt fjallað um siðareglur hjá þessum tveimur aðilum. Ein af þeim ábendingum sem beinist að báðum aðilum, þ.e. æðstu handhöfum framkvæmdarvalds sem og lögreglu, er að mikilvægt sé að til staðar sé eftirlitsaðili með framkvæmd siðareglna þegar þær eru til staðar, eins og er á þessum tveimur stöðum, og að viðurlagakerfi sé komið á fót sé ekki farið eftir siðareglum. Ég held að þetta sé mjög mikilvægt atriði, líka hér á þinginu. Því siðareglur mega sín lítils ef ekki er farið eftir þeim og ef ekki er brugðist við sé farið á svig við þær.

Siðareglurnar eins og þær birtast í dag eru meira svona hagsmunatengdar. Það er verið að reyna að tryggja að þingmenn séu frjálsir þegar þeir eru hér í störfum sínum, að þeir gæti hagsmuna almennings en ekki einhverra sérhagsmuna, að þeir þiggi ekki greiðslur eða gjafir fyrir störf sín hér o.s.frv. Þetta er allt góðra gjalda vert. En með þessum breytingum er verið að taka skýrt á þessari framkomu.

Ég held að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hljóti að fjalla um þetta líka í aðeins víðara formi, þ.e. bara framkomuna í heild sinni. Auðvitað tekst fólk á hér í þinginu, er ósammála um ýmsa hluti. En það þarf að gæta að mannasiðum, gæta þess að sýna ekki ofbeldisfulla hegðun. Því að ofbeldisfull hegðun getur beinst að öllum kynjum, komið fram sem líkamlegt ofbeldi eða hreinlega ógnvekjandi hegðun. Líka með orðum. Ég held að við þurfum að skoða þetta aðeins í víðara samhengi. Þessi vanvirðandi hegðun, kynbundið ofbeldi, það er allt undir. Þetta er mjög jákvætt skref en ég held að við munum alltaf þurfa að tala um þetta út frá aðeins víðara sjónarhorni, þ.e. hvers kyns vanvirðandi hegðun, bæði í orðum og verkum.

Ég velti aðeins fyrir mér þessu með siðanefnd sem nefnd er í siðareglum þingmanna, þessa siðanefnd sem minnst er á í 15. gr., hvort hún hafi einhvern tíma komið saman, hvort einhvern tíma hafi komið mál sem siðanefndin hefur þurft að takast á við. Það er nefnilega vont ef þeir sem hér starfa, hvort sem um er að ræða þingmenn, starfsfólk eða gesti, hafa á tilfinningunni að siðareglurnar séu meira sem fjarvistarsönnun en lítið til brúks. Ég velti fyrir mér hvort það hafi raunverulega komið upp einhver mál. Það er töluverður fjöldi sem starfar hér á þinginu og utan þings sem er í samskiptum við þingmenn. Ég held að við eigum hvort tveggja að kynna siðareglurnar vel fyrir þingmönnum sem eru hér og fara í góða umræðu um þær, en líka að kynna þær fyrir öðru starfsfólki þingsins. Jafnvel fá það aðeins að borðinu við þessa vinnu til þess að það starfsfólk átti sig á hvaða siðareglum við þingmenn höfum skuldbundið okkur til að fara eftir.

Annars segi ég: Ég fagna mjög framlagningu þessari. Mér finnst við vera að skapa mjög gott fordæmi með þessu og hlakka til að takast á við þessa vinnu.