siðareglur fyrir alþingismenn.
Herra forseti. Varðandi GRECO er vissulega fjallað í nýjasta áliti þeirra um siðareglur eins og þær snúa að æðstu handhöfum framkvæmdarvalds, löggæslu og dómstólum, alla vega lögreglunni. Þessi skýrsla var í sjálfu sér ekki um löggjafarvaldið heldur er það eldri skýrsla frá 2014. Forsætisnefnd hefur alltaf tekið athugasemdir GRECO fyrir og farið vel yfir þær. Við munum gera það í þessu tilviki líka. Það er reyndar verið að vinna með tvær af eldri ábendingum GRECO frá fyrri skýrslu sem vonandi líta dagsins ljós í breytingum á reglum um hagsmunaskráningu o.fl.
Varðandi eftirlit með siðareglum, að það sé til staðar og eftir atvikum viðurlög, var það auðvitað mikið rætt þegar núverandi siðareglur þingmanna voru undirbúnar og settar og hallast að þeirri leið sem upp að vissu marki er tekin upp frá Evrópuráðsþinginu í Strassborg að í raun séu viðurlögin fyrst og fremst fólgin í umfjöllun og niðurstöðu þess sem hefur með eftirlitið eða framfylgni að gera og opinberri birtingu. Þar kemur auðvitað við sögu hið sérstaka ráðningarsamband kjörinna fulltrúa við umbjóðendur sína.
Hafandi þó sagt það tel ég að ástæða sé til að fara yfir þessar athugasemdir GRECO einnig í þessu samhengi.
Hefur siðanefndin, eða ráðgjafanefnd sem forsætisnefnd er til aðstoðar og ráðuneytis ef þörf krefur, komið saman? Já, hún hefur gert það, en það var að vísu til að veita okkur umsögn um þessa breytingu á siðareglunum. Hún var virkjuð og kom saman til fundar í fyrsta sinn einmitt til þess að veita okkur umsögn um þessa tillögu og kom með gagnlegar ábendingar sem við gerðum að okkar. (Forseti hringir.) En hún hefur ekki verið virkjuð enn sem komið er. Mér liggur nú bara við að segja: Sem betur fer hefur ekki á það reynt að hún þyrfti að taka fyrir meint brot.