148. löggjafarþing — 57. fundur,  26. apr. 2018.

siðareglur fyrir alþingismenn.

443. mál
[15:52]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg):

Herra forseti. Ég vil í upphafi taka fram að ég er afar ánægður með það að hv. forsætisnefnd og áheyrnarfulltrúar í henni skuli leggja fram þetta ágæta mál og ánægður með þann áhuga sem þingmenn sýna því.

Hér er nefnilega að mínu viti ekki um neitt smámál að ræða. Þetta er í rauninni framhald á þeim viðbrögðum sem þingið sýndi í kjölfar #metoo-byltingarinnar sem hófst hér í haust er leið og mjög mikilvægt að þingið sýni áþreifanlega að við ætlum ekkert að hnýta einhverja endahnúta á það mál. Við ætlum ekki að kaupa okkur syndaaflausn með því að hafa gert eitthvað og svo er það bara fínt. Nei, við ætlum þvert á móti að reyna að búa þannig um málið að áfram verði fylgst með. Þetta er sérstaklega mikilvægt fyrir okkur, hv. alþingismenn, og þingið sem stofnun vegna þess hversu eðlisólík þessi stofnun er flestum öðrum stofnunum í samfélaginu. Allt sem við gerum hér inni er tekið upp og hljóðritað, allt sem fer fram í þingsal er tekið upp og þetta opinbera í störfum þingmanna er raunverulega mjög mikilvægt. Allt sem við gerum sem hv. þingmenn er endurspeglun á öllu starfi þingsins. Allt sem við segjum út á við endurspeglar á einhvern hátt þingið og þar með er allt sem við gerum bæði inn á við og út á við hluti af þessum sama spegli.

Ég hef á mínum fyrri pólitíska vettvangi, þ.e. í sveitarstjórn, tekið þátt í að semja siðareglur, svipaðar þeim sem þingið hefur, hjá Kópavogsbæ. Þar var farin sú leið að láta bæjarfulltrúa, í því tilfelli, rita nafn sitt við upphaf hvers kjörtímabils undir siðareglurnar, staðfesta siðareglurnar sjálfar við upphaf hvers kjörtímabils. Ég velti fyrir mér hvort ekki væri bragur á því að kveða aðeins skýrar á um þetta en gert er í reglunum eins og þær eru núna og þess vegna kannski að skoða hvort það ætti ekki annars vegar að vera ákvæði um það í hvert skipti sem þeim er breytt, að þá þurfi allir þingmenn að staðfesta reglurnar, en jafnframt í hvert skipti a.m.k. sem þing er kosið.

Ég er kannski á svipuðum nótum og hv. þm. Andrés Ingi Jónsson var á áðan þegar ég velti því jafnframt fyrir mér hvort það ætti ekki jafnvel í upphafi hvers þings að vera einhvers konar fyrirlestur, samkoma þar sem þingmenn kæmu saman og rituðu nafn sitt síðan í kjölfarið á því að hlusta á fyrirlestur undir einhverja svona yfirlýsingu. Í þarsíðasta starfi sem ég var í voru alls konar reglur, þegar ég starfaði á þeim vettvangi við háskóla í Bandaríkjunum voru reglur um að í upphafi hvers starfsárs þyrftu allir að sitja einn fyrirlestur um það hvað berklar væru hættulegir. Ef menn gerðu það ekki voru þeir hýrudregnir þangað til þeir gátu sýnt fram á að þeir hefðu setið einn slíkan fyrirlestur það árið. Ég dreg þetta fram til að sýna að það eru alls konar leiðir til að fá fólk til að skilja að við erum ekki bara með þetta sem einhver orð á blaði, við erum með þetta vegna þess að okkur finnst þetta raunverulega skipta máli. Okkur finnst þetta vera svo mikilvægt að það sé ástæða til að hnykkja einhvern veginn á því með mjög sértækum hætti.

Hv. þingmaður og formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, Helga Vala Helgadóttir, kom aðeins inn á viðurlögin. Það er gleðilegt að formaðurinn hyggist taka vel á þessu máli í hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Það er mjög mikilvægt. Hvernig er hægt að búa eitthvað slíkt til í kringum svona regluverk? Ég hvet hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd til þess að taka heiðarlega umræðu um það í nefndinni hvort hægt væri að nota þessa ferð til að skoða það eitthvað betur, hvort hægt væri að nota ferðina til að skoða betur með hvaða hætti væri hægt að beita einhverjum viðurlögum, ekki kannski eins og þeir herskáustu myndu segja, hengja menn út til þerris, eða konur eftir atvikum, en samt þannig að það ýti undir að menn skilji almennilega mikilvægi reglnanna, menn skilji almennilega um hvað þetta snýst, að þetta snúist um meira en bara einhvern tiltekinn verknað, þetta snúist um svo miklu meira. Þetta snýst um virðingu þingsins og virðingu samfélagsins fyrir þinginu. Þetta eru atriði sem ég held að sé mikilvægt að skoða.

Mig langar í lokin aftur að beina því til hv. nefndar að velta fyrir sér hvort það mætti víkka út ákvæðið í b-lið tillögugreinarinnar, með leyfi forseta:

„Þingmenn skulu ekki sýna öðrum þingmönnum, starfsmönnum þingsins eða gestum kynferðislega eða kynbundna áreitni, leggja þá í einelti eða koma fram við þá á annan vanvirðandi hátt.“

Mér finnst eins og þarna mætti alveg bæta inn einhverri meiri samfélagslegri tengingu sem sneri þá að því að það þurfi ekki endilega að vera einhver sem er beinlínis hérna innan veggja, að heimsækja þingið eða eitthvað þess háttar, heldur megi það líka vera hegðun þingmanna í daglega lífinu almennt. Jafnvel þó að við eigum okkur einkalíf og séum ekki öllum stundum í þinghúsinu eða á vegum þingsins einhvers staðar erum við alls staðar sem við komum meðan við höfum þetta umboð kjörnir þingmenn þjóðarinnar og þess vegna mikilvægt að velta upp þessum möguleika.

Ég óska að lokum hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd góðs gengis í yfirferðinni í þessu máli og hlakka til að taka við fullbúinni afurð í kjölfar vinnu nefndarinnar hér í þingsal.