148. löggjafarþing — 57. fundur,  26. apr. 2018.

siðareglur fyrir alþingismenn.

443. mál
[16:24]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir ræðuna. Þingmanninum varð tíðrætt um það hvenær maður væri opinber persóna og hvað sé opinber persóna, hvað af því sem þingmenn geri sé opinbert. Þetta er að sumu leyti tilvistarleg spurning, má segja. Er nútíminn, ef hann er til sem fyrirbæri, ekki orðinn að opinberri tilveru nánast fyrir okkur öllum? Er ekki einhvern veginn allt sem við öll gerum nánast á torginu á hverjum degi?

Þá kem ég að því innihaldi sem ég ætlaði m.a. að velta upp við þingmanninn, þessari notkun á samfélagsmiðlum og netinu í það heila. Þingmenn eru sennilega langflestir skráðir á fyrirbærið Facebook. Við mörg hver smellum á einhverja hlekki þar eða lækum öllum stundum — er það opinbert athæfi? Erum við með því að lýsa yfir stuðningi við eitthvað sem kannski væri hægt að heimfæra á siðareglurnar? Eða þurfa jafnvel siðareglurnar að taka með einhverju móti á þessu? Þurfa þingmenn jafnvel að vera með annars vegar einka-Facebook-síðu og hins vegar Facebook-síðu sem þingmenn þar sem þeirra opinbera persóna kæmi fram?