siðareglur fyrir alþingismenn.
Virðulegi forseti. Ég hef alveg lent í að smella læki á eitthvað sem er kannski hluti af stórri frétt eða færslu og það er oftúlkað, voðalega gaman að því. Það er allur gangur þar á og sérstaklega lesið í hvað maður gerir sem opinber persóna, leitað eftir því og augun rekin í ef það er eitthvað sem má túlka á einn veg eða annan. Allt gott og blessað með það.
Ég held að þetta með einka-Facebook — einkaflettismetti eða hvað sem það kallast á íslenskunni — og opinbera Facebook-síðu snerti það sem ég nefndi áðan. Ég get ekki kvittað undir siðareglur sem ég get ekki framfylgt. Það kemur minni opinberu persónu ekkert við. Það þýðir að þær gilda á minni persónulegu fésbókarsíðu. Ég túlka það þannig út frá mér.