148. löggjafarþing — 57. fundur,  26. apr. 2018.

Kristnisjóður o.fl.

269. mál
[17:45]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Þegar umræða um lóðir undir byggingar safnaða og trúfélaga komst í hámæli þá var það út af því að menn töldu að byggja ætti mosku á svo fínum stað að það væri ekki sniðugt að gera það. Það sem ég óttast er að ákvarðanir af þessu tagi ýti undir mismunun á milli trúfélaga og safnaða og gefi sveitarfélögum tækifæri til þess að segja: Við erum hér með þjóðkirkjuna. Við leyfum engum öðrum trúfélögum að byggja nema dýru verði og á einhverjum sérstökum stað sem við veljum fyrir þau.

Ég er ekki á móti frumvarpinu en ég hvet til þess að vandlega verði farið ofan í saumana á þessu öllu saman í nefndinni, en að þessum hlutum verði líka velt upp og það verði bara orðað á íslensku; horfum bara á dæmin sem eru til og hvað þau leiddu af sér.

Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hún þekki það hvort þetta hafi valdið vandræðum í öðrum sveitarfélögum úti um land, önnur en það dæmi sem ég tíndi til hér áðan; og kannski voru það ekki einu sinni vandræði heldur umræða sem gekk yfir.