Kristnisjóður o.fl.
Forseti. Aftur þakka ég hv. þingmanni fyrir sitt innlegg og spurningar. Ég held raunverulega, þegar upp er staðið, að þetta sé þörf áminning til okkar um að við bregðumst fyrr við — þegar við sitjum uppi með lög sem eru orðin barn síns tíma, tímarnir hafa breyst — en við erum mögulega að gera í þessu tilfelli. Við vöknum upp við að þarna er ákveðið misræmi, að mögulega er verið mismuna trúfélögum, þó svo að málið hafi farið eins og það fór í Reykjavík fyrir nokkrum árum.
Ég held aftur að umræða í nefnd um þetta mál, umsögn hagsmunaaðila og þeirra sem koma að málinu, eigi eftir að geta fleytt málinu áfram og mögulega betrumbætt það. Þannig að ég held að mikilvæg umræða sé fram undan.
Varðandi spurninguna, hvort ég þekki til þess að upp hafi komið mál í öðrum sveitarfélögum, þá þekki ég ekki til þess að mál af þessum toga hafi komið upp. Ég veit hins vegar að víða hefur þessi skylda til að láta af hendi land — jafnvel þar sem skortur er á dýrmætu landi, ég tala nú ekki um tekjum — valdið ákveðnum vandræðum.