148. löggjafarþing — 57. fundur,  26. apr. 2018.

Kristnisjóður o.fl.

269. mál
[17:58]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Líkt og hv. þm. Oddný G. Harðardóttir orðaði það áðan erum við smátt og smátt að breytast í fjölmenningarsamfélag og ég vil segja: Sem betur fer, það er bara frábært. Það er frábært að fleiri og fleiri skuli vilja koma til Íslands, frábært að við skulum ekki öll vera með sömu skoðunina. Þegar við horfum til jafnræðis verðum við að búa þannig um breytingar á löggjöf að þær festi ekki í sessi það sem hv. flutningsmenn eru að einhverju leyti að tala um sem órétt með því að raungera til langframa stöðu núverandi trúfélaga sem hafa fengið gefins lóðir.

Þetta með fasteignagjöldin leysir ekki það vandamál. Fyrir andlagið ókeypis lóð getum við ekki látið borga eftir á. Þótt við byrjuðum að láta að borga núna einhver fasteignagjöld er viðkomandi samt með mjög mikið forskot á alla hina. Ég er ekki sammála þingmanninum um að ekki væri hægt að hafa eitthvert sólarlagsákvæði eða fella út úr greininni að þau trúfélög sem ekki hafa fengið ókeypis lóð geti áfram sótt um hana innan einhvers tiltekins tíma.

Hvað varðar svo fasteignagjöldin ber sveitarfélögum ekki bara að veita afslátt eða gefa trúfélögum eftir fasteignagjöld. Fjöldinn allur af öðrum félögum sem eru ekki rekin í hagnaðarskyni sækir um slíkt til sveitarfélaga. Ég veit ekki hvernig við skilgreinum trúfélög hvað þetta varðar en ég held að í huga flestra okkar séu venjuleg trúfélög ekki félög rekin í hagnaðarskyni. Sumir myndu jafnvel frekar halda að þau væru góðgerðarfélög. Hvernig eigum við að komast hjá þessu? (Forseti hringir.) Þess vegna held ég að það þurfi að búa betur um þetta en gert er í frumvarpinu, a.m.k. í umfjöllun nefndarinnar.