Kristnisjóður o.fl.
Virðulegi forseti. Ég er í sjálfu sér ekki að leita eftir lagaútskýringum, ég er miklu frekar að leita eftir viðhorfi hv. þingmanns til þess hvernig hlutirnir ættu að vera. Það er þess vegna sem við erum hér. Við erum ekki hér til að fella dóma yfir lögunum, við erum hér til þess að búa þau til.
Eins og hv. þingmaður segir þá eru kirkjur nefndar sérstaklega en þær eru nefndar almennt í 5. gr. laganna sem um ræðir. Það er ekki talað um lútersk evangeliskar kirkjur, það er ekki talað um þjóðkirkjuna, það er talað um kirkjur almennt. Vissulega eru kirkjur hjá hinum lúterska evangeliska söfnuði en það eru líka kirkjur hjá kaþólska söfnuðinum, það eru kirkjur hjá rússneska orthodoxsöfnuðinum og rétttrúnaðarsöfnuðinum gríska það eru kirkjur hjá baptistasöfnuðinum, hvað maður á að kalla það, hvítasunnusöfnuðinum og hjá slíkum söfnuðum. Telur hv. þingmaður að ákvæðið eigi, ég er að spyrja um skoðun hv. þingmanns, að eiga við um kirkjur kristinna söfnuða eða einungis þessa tiltekna safnaðar, þ.e. þjóðkirkjunnar?