148. löggjafarþing — 57. fundur,  26. apr. 2018.

Kristnisjóður o.fl.

269. mál
[18:18]
Horfa

Flm. (Helgi Hrafn Gunnarsson) (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir lexíuna. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort honum þyki það vera eðlileg viðskipti tveggja stofnana eins og ríkisins og þjóðkirkjunnar, að því gefnu að ég hafi skilið lexíu hv. þingmanns rétt, að ríkið fái tæmandi jarðir frá þjóðkirkjunni gegn því að borga laun presta og ýmislegt annað að eilífu. Með öðrum orðum, gjaldið er óendanlega hátt. Ofan á þetta skyldi ríkið sveitarfélögin til að gefa þjóðkirkjunni svæði undir kirkjur endurgjaldslaust. Er þetta díllinn í fyrsta lagi sem hv. þingmaður var að lýsa? Í öðru lagi: Finnst hv. þingmanni þetta vera heiðarleg viðskipti, samkvæmt kristnum stöðlum?

(Forseti (ÞorS): Forseti minnir á að íslenska er þingmálið.)