148. löggjafarþing — 57. fundur,  26. apr. 2018.

Kristnisjóður o.fl.

269. mál
[18:20]
Horfa

Flm. (Helgi Hrafn Gunnarsson) (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það vill nú þannig til að þrátt fyrir kirkjunnar ljóma og þrátt fyrir alla þá dýrð og þann heilagleika sem hún kann að gefa sjálfri sér með heilagri ritningu og öllu sem henni fellur til, er það Alþingi sem á að setja lögin í landinu og það er sú stofnun sem ákveður hvernig hlutirnir eiga að vera. Ekki kirkjan. Það er ekki kirkjan heldur þessi stofnun.

Hv. þingmaður í málflutningi sínum vill meina að þetta sé eitthvað sem við getum ekkert haft nein áhrif á, ef ég skil hann rétt, hann endilega leiðréttir mig ef ég fer rangt með það sem hann var að segja. En ef skilaboðin eru þau að við hérna getum ekki breytt þessu, að við verðum einhvern veginn vegna eldri verka ríkis og Alþingis á sínum tíma að neyða sveitarfélögin til að gefa lóðir til kirkjunnar eða afhenda þær sem hún átti alltaf, ef ég skildi hv. þingmann rétt sem ég er reyndar viss um að sé tilfellið, þá þýðir það einfaldlega að þessir samningar hafi verið gerðir til þess að meina Alþingi að gera breytingar á þessu fyrirkomulagi. Það væri í samræmi við óheiðarleikann á bak við kirkjujarðasamkomulagið sem var mjög bersýnilega og vísvitandi gert til þess að taka fram fyrir hendurnar á komandi kynslóðum sem kæmu til með að vilja breyta þessu tiltekna atriði í sínu samfélagi.

Ég er ekki að spyrja hv. þingmann út í einhverjar lagaskýringar. Ég er að spyrja hvað hv. þingmanni finnst. Nú erum við komin hingað á þessa löggjafarsamkundu til þess að ákveða hvernig hlutirnir séu. Við megum meira segja í þessari pontu stinga upp á alls konar vitleysu. Við getum stungið upp á því að brjóta samninga, það hefur verið gert, frekar nýlega meira að segja og mig langar ekki til þess. Ég ætla að segja hvað mér finnst um þá samninga sem hafa verið gerðir jafnvel þótt ég stingi ekki upp á því að þeir séu brotnir. Ég spyr aftur hv. þingmann: Telur hann, út frá kristnum gildum ef hann vill, það vera heiðarleg viðskipti (Forseti hringir.) að láta af hendi jarðir til ríkisins og fá að launum laun presta að eilífu og fleira (Forseti hringir.)og ókeypis jarðir þar ofan á. Finnst hv. þingmanni það heiðarlegt?