Kristnisjóður o.fl.
Hæstv. forseti. Löggjafarvald Íslendinga er hér á Alþingi þar sem við stöndum og lögin sem um er rætt koma frá Alþingi. Við getum vissulega breytt þeim lögum og ég andmæli því ekki. Mér finnst hins vegar að við eigum að fara að lögum. Talandi um siðferði og talandi um mál sem var hér fyrr á dagskrá þingsins í dag, (Gripið fram í.) þar er verið að tala um hvernig við ættum að haga okkur siðferðilega, er það ekki?
Þarna var gerður samningur og hann er í fullu gildi og mér finnst eðlilegt að við stöndum við hann á meðan hann er í gildi. Mér finnst eðlilegt ef við ætlum að ræða breytingar á þeim samningi þá sé það gert á réttum forsendum og ekki sé farið í einhverja skemmri skírn á lögskýringum þegar verið er að koma upp og tala fyrir frumvörpum.