verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni yfirferð þessa ágæta frumvarps. Svo vill til að sú sem hér stendur var flutningsmaður eins frumvarps, orðrétt eins og það leit út eftir mjög mikla vinnu á þinginu, á næstsíðasta þingi, 146. þingi, og tók það þar mjög miklum breytingum eftir margar athugasemdir og mikla vinnu í þinginu þannig að ég þekki þetta frumvarp ágætlega og get vitnað um að það var mikil og fín vinna lögð í það. Þá er kannski undarlegt að ég sé hér í andsvari en ég hnaut þó um eitt atriði sem mig langar að fá að spyrja flutningsmann út í, atriði í 14. gr. þar sem kveðið er á um að afgreiðslutíminn eigi að vera á milli kl. 11 að morgni og kl. 22 að kvöldi en sveitarstjórnir megi skilyrða þann afgreiðslutíma.
Mig langaði að forvitnast um hvort það hefði verið rætt að það ætti samt að setja gólf gagnvart sveitarfélögunum frá því að við skildum við frumvarpið svo ákveðnar sveitarstjórnir gætu ekki jafnvel haft afgreiðslutímann engan.