148. löggjafarþing — 57. fundur,  26. apr. 2018.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

287. mál
[19:16]
Horfa

Fjölnir Sæmundsson (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég skil ekki enn þá hvaða matvöruverslanir þetta eru. Eru þetta þá einhverjar litlar sjoppur sem selja samlokur og jógúrt og mega þá selja áfengi? Ég átta mig bara ekki á því. Það stendur skýrt: „stórmörkuðum og matvöruverslunum“. Ég trúi ekki að fólk sé líka það einfalt að halda virkilega að stórar verslunarkeðjur, t.d. Bónus, opni ekki bara litlar, krúttlegar verslanir. Þær geta það alveg. Við vitum að það verður fákeppni á þessum markaði. Stórmarkaðirnir verða auðvitað þeir sem raunverulega selja áfengi og það verður einfaldlega fákeppni og minna úrval.