148. löggjafarþing — 58. fundur,  2. maí 2018.

bygging leiguíbúða.

[15:18]
Horfa

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf):

Herra forseti. Þegar þessi sérkennilega ríkisstjórn var mynduð fyrir rúmum 150 dögum töldu sumir það til happs að sósíalisti væri nú kominn í stól forsætisráðherra. Eftir baráttudag verkafólks í gær sjást hins vegar fá merki þess að hér sitji ríkisstjórn sem er sérstaklega umhugað um hag verkafólks.

Ríkisstjórnin með sósíalistann við borðsendann hefur ákveðið að setja ekki krónu til viðbótar í barnabætur eða vaxtabætur næstu fimm árin. Þá er boðuð skattstefna sem færir milljón króna manninum þrisvar sinnum meiri skattalækkun en það sem ljósmóðirin á grunnlaunum fær.

Herra forseti. Eitt stóð hins vegar upp úr eftir barátturæður gærdagsins, húsnæðismálin. Ef valdaflokkarnir hefðu hlustað á tíu klukkustunda ræðu Jóhönnu Sigurðardóttur fyrir 20 árum væru nú 12.000 fleiri íbúðir á félagslega markaðnum. Að hafa þak yfir höfuðið eru sjálfsögð mannréttindi en það hefur sjaldan verið eins erfitt fyrir ungt fólk og nú. Leiguverð er að sliga venjulegt fólk á venjulegum launum. Þess vegna er það sorglegt að í fimm ára fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar hefur verið ákveðið að setja helmingi minna fjármagn til byggingar leiguíbúða en nú er gert og að af 34 málefnasviðum ríkisútgjalda er meira að segja mesta lækkunin á málefnasviðinu sem kallast húsnæðisstuðningur.

Herra forseti. Því spyr ég hæstv. forsætisráðherra: Hvernig stendur á því að hún býður þjóðinni, og sérstaklega ungu fólki, upp á þessa fátæklegu fimm ára framtíðarsýn þegar kemur að húsnæðismálum? Af hverju vill þessi ríkisstjórn beinlínis lækka framlög sín til byggingar leiguíbúða um helming á næstu fimm árum þegar þörfin öskrar á hækkun framlaga til þessara mála?