148. löggjafarþing — 58. fundur,  2. maí 2018.

bygging leiguíbúða.

[15:22]
Horfa

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf):

Herra forseti. Ósköp eru þetta fátækleg svör hjá hæstv. forsætisráðherra þegar kemur að húsnæðismálum. Hún skilar, eins og kemur fram í fjármálaáætluninni, auðu hvað þetta varðar. Hún boðar samtal en af hverju boðar hún ekki, í fimm ára framtíðarsýn sinni, aukin framlög til uppbyggingar á leiguhúsnæði? Í fjármálaáætlun er sérstaklega boðað að hún fái aukið húsnæði fyrir ráðuneyti sitt. Af hverju tryggir hún ekki aukna fjármuni í leiguíbúðir fyrir ungt fólk? Þessi fimm ára áætlun er framtíðarsýn þessarar ríkisstjórnar og það er alveg með ólíkindum að við heyrum aftur og aftur að hér eigi eftir að taka samráð og samtal o.s.frv. þegar í stefnunni koma fram margs konar áhersluatriði ríkisstjórnarinnar. Af hverju er það ekki bara sjálfstætt stefnumál þessarar ríkisstjórnar að auka framlög til byggingar leiguíbúða? Af hverju þarf uppbygging á eðlilegum hluta velferðarkerfisins að vera skiptimynt í kjarasamningum? Af hverju á venjulegt fólk alltaf að niðurgreiða sínar eigin launahækkanir með uppbyggingu á velferðarkerfinu og innviðum sem er síðan borgað fyrir með skattfé þessa sama fólks?

Herra forseti. (Forseti hringir.) Það er alveg ljóst að verkalýðshreyfingin sér ekki samherja í forsætisráðherra. Ríkisstjórnin hefur augljóslega ekki heyrt herópin á Ingólfstorgi. Þessi ríkisstjórn er eintóm vonbrigði, (Forseti hringir.) hvort sem litið er til vaxtabóta, barnabóta, húsnæðismála, ljósmæðra, (Forseti hringir.) hvalveiða o.s.frv. Og núna dómsmálaráðherra og félagsmálaráðherra.