148. löggjafarþing — 58. fundur,  2. maí 2018.

bygging leiguíbúða.

[15:24]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Mér þykir það mjög leitt ef hv. þingmaður er svona vonsvikinn og ég mæli með því að hann vinni eitthvað í því máli. Ég get alveg bent honum á að það eru gríðarlegar umbætur í fjármálaáætlun. Það þýðir ekki að koma hér upp og segja: Þetta eru tóm vonbrigði. Auðvitað svarar fjármálaáætlunin ekkert öllum spurningum. Það er gríðarleg uppbygging fram undan í heilbrigðismálum, í samgöngumálum og menntamálum, en hins vegar er ekki öllum spurningum svarað. Hv. þingmaður getur verið hér alveg óskaplega hlessa yfir því en ég vil bara segja að ég hef mikla trú á því að við vinnum hlutina vel.

Hvað hefur komið út úr þessu samtali milli stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins sem hv. þingmaður gerir lítið úr? Það komu t.d. aðgerðir. Þær voru engin skiptimynt í kjarasamningum. Þær birtust í yfirlýsingu í kringum gerð kjarasamninga í vor. Þær voru ekki háðar því hvernig sú afgreiðsla yrði því að þær urðu til þess að atvinnuleysisbætur hækkuðu hér í gær upp í 90% af dagvinnutryggingu, þær urðu til þess að greiðslur úr Ábyrgðasjóði launa hækkuðu hér í gær og tóku þar með eðlilegum breytingum sem ekki hafði verið gert lengi. Þær urðu til þess að við ákváðum að fara í samtal (Forseti hringir.) við heildarsamtök launafólks um hvernig við ætlum að breyta tekjuskattskerfinu til hagsbóta fyrir tekjulægri og lægri millitekjuhópa.

Ég held að hv. (Forseti hringir.) þingmaður þurfi ekkert að vera sérstaklega vonsvikinn með þetta.