framboð Íslands til barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna.
Herra forseti. Barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna er mjög mikilvæg nefnd sem hefur á að skipa hæfasta fólkinu á þessu sviði frá hinum ýmsu löndum. Nefndin hefur m.a. eftirlit með framkvæmd og innleiðingu barnasáttmálans, túlkar ákvæði sáttmálans og útfærir þær skyldur sem sáttmálinn leggur á aðildarríki. Nefndin er skipuð 18 fulltrúum frá jafn mörgum löndum. Á heimasíðu nefndarinnar segir að nefndarmenn séu sérfræðingar sem hafi til að bera ríka siðferðiskennd og framúrskarandi samstarfshæfileika. Nefndarmaður er skipaður til fjögurra ára. Ísland sækist nú eftir því að eiga fulltrúa í nefndinni og verður hann jafnframt frambjóðandi Norðurlanda.
Fulltrúi ríkisstjórnar Íslands er forstjóri Barnaverndarstofu, maður með langan starfsferil á þessum vettvangi. Málum er hins vegar þannig háttað að viðkomandi hefur verið undir rannsókn í velferðarráðuneytinu fyrir möguleg brot í starfi. Fyrrverandi ráðherra málaflokksins sem þekkir til málavöxtu hefur sagt að ávirðingarnar séu mjög alvarlegar. Málið hefur verið mjög áberandi í fjölmiðlum að undanförnu. Hæstv. félagsmálaráðherra hefur nú loks viðurkennt að forstjóri Barnaverndarstofu hafi farið út fyrir starfshlutverk sitt í tilteknu máli.
Það liggur fyrir að niðurstaða rannsóknar á meintum brotum forstjórans hefur aldrei verið birt. Hæstv. félagsmálaráðherra hefur ekki upplýst þingið um þennan mikilvæga þátt málsins, auk þess sem hann hefur ákveðið einhliða að það að fara út fyrir starfssvið sitt í svo mikilvægum málaflokki sé ekki brot í starfi.
Þetta mál snýst um það hvort forstjóri opinberrar stofnunar hafi misbeitt valdi sínu og hvort ráðherra málaflokksins hafi ákveðið að sinna eftirlitsskyldu sinni gagnvart Barnaverndarstofu með boðlegum hætti. Það snýst um það hvort ríkisstjórnin hafi samþykkt afgreiðslu á málinu án þess að hún hafi verið fyllilega upplýst um alvarleika þess.
Herra forseti. Barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna er ein af mikilvægustu nefndunum á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Um störf nefndarinnar og nefndarmenn verður að ríkja fullkomið traust og fullkomin sátt. Sú umræða sem hér hefur átt sér stað berst á ljóshraða (Forseti hringir.) á vettvang Sameinuðu þjóðanna. Hún varðar orðstír okkar sem þjóðar ef framboðinu verður haldið til streitu.
Ég vil því spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort ríkisstjórnin sé einhuga um forstjóra Barnaverndarstofu sem frambjóðanda Íslands.