148. löggjafarþing — 58. fundur,  2. maí 2018.

framboð Íslands til barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna.

[15:30]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra svarið. Ég vil jafnframt spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort sátt ríki innan ríkisstjórnarinnar og hvort hæstv. forsætisráðherra sé sátt við embættisfærslur félagsmálaráðherra í þessu máli.

Hæstv. forsætisráðherra minntist einnig á það að hún hefði óskað eftir sérstakri úttekt og ég fagna því að sjálfsögðu en sú úttekt snýr ekki að upplýsingaskyldu gagnvart Alþingi. Og þá spyr ég hvort það sé ekki rétt að Alþingi rannsaki sérstaklega meint brot félagsmálaráðherra á þingsköpum Alþingis.