148. löggjafarþing — 58. fundur,  2. maí 2018.

skattlagning styrkja til lyfjakaupa o.fl.

[15:33]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegi forseti. Ástæða þess að ég kom hingað upp er frumvarp sem ég lagði fram um afnám skatta á styrki til lyfjakaupa og bensínstyrki til þeirra sem verst eru staddir og lifa í sárri fátækt.

Í meðförum efnahags- og viðskiptanefndar sendi Tryggingastofnun inn bréf sem er svo dæmalaust að ég held að ég hafi aldrei lesið annað eins bréf fyrr eða síðar. Þetta bréf er sent inn 28. mars 2018 og er inni hjá nefndinni. Það er verið að beita útúrsnúningum og blekkingum til þess að reyna að sannfæra nefndina um að ef þessar bætur yrðu skattlausar myndu þær hafa öfug áhrif fyrir þetta fólk.

Við erum að tala um bætur sem eru ekki bara skattaðar heldur valda því að þegar þær eru taldar sem tekjur skerða þær fjárhagsaðstoð sveitarfélaga, húsnæðisbætur, sérstakan húsnæðisstuðning, barnabætur, vaxtabætur og fasteignagjöld. Þetta endar með því að sumir sem fá þetta fara í mínus. Það er verið að blekkja fólk. Við erum bara að biðja um að hætt verði að blekkja fólk, að það fái þessar bætur skatt- og skerðingarlausar þannig að þær dugi því fólki sem lifir í sárri fátækt og hefur mikinn lyfjakostnað og er t.d. í hjólastólum.

Þess vegna spyr ég hæstv. ráðherra: Er það eðlilegt að Tryggingastofnun — þetta eru skjólstæðingar hennar — reyni að beita blekkingum til að koma í veg fyrir að þeir fái þessar bætur skatt- og skerðingarlausar? Og ég spyr líka: Ætlar hann að kynna sér þetta mál og taka á því? Þetta er ekki eðlileg meðferð hjá opinberri stofnun eins og Tryggingastofnun ríkisins, sem ég verð því miður að kalla í dag skerðingarstofnun ríkisins.