148. löggjafarþing — 58. fundur,  2. maí 2018.

skattlagning styrkja til lyfjakaupa o.fl.

[15:35]
Horfa

félags- og jafnréttismálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn, hann er mikill baráttumaður fyrir þá sem minna mega sín í samfélaginu. Við höfum oftar en einu sinni átt orðaskipti héðan úr þessum ræðustól um þau mál sem það snertir. Ég dreg því ekki í efa að frumvarp sem hv. þingmaður legði fram yrði gott og til mikilla hagsbóta fyrir þennan hóp.

Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki kynnt mér þær umsagnir sem hafa komið um þetta mál. Mér er ekki kunnugt um nákvæmlega hvert innihald þessarar umsagnar Tryggingastofnunar er. Ég get þó sagt það mjög stutt og skýrt að ég mun kynna mér það í framhaldinu. Vonandi getum við svo átt orðaskipti um þetta mál aftur.

En á meðan ég hef ekki kynnt mér umsögnina held ég að það sé betra að segja minna en meira.