148. löggjafarþing — 58. fundur,  2. maí 2018.

skattlagning styrkja til lyfjakaupa o.fl.

[15:36]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og ég vona heitt og innilega að hann kynni sér þetta og ég vona heitt og innilega að þetta mál komist inn í þingið og við getum afgreitt það með sóma þannig að þeir einstaklingar sem lifa í sárri fátækt þurfi ekki að verða fyrir því að slíkir styrkir séu notaðir til að klekkja á þeim og skerða bætur þeirra langt út fyrir það sem eðlilegt getur talist.

Í framhaldinu vil ég spyrja ráðherra, vegna þess að við áttum orðaskipti 9. apríl sl. um töku á hálfum lífeyri og þá sagði ráðherra orðrétt, með leyfi forseta:

„Ég vil segja hér að á leiðinni er mál, ef það er ekki komið til þingsins er það á leiðinni, til að gera breytingar á þessu og koma í veg fyrir þá glufu sem þarna myndast og hv. þingmaður kom inn á.“

Ég spyr ráðherra: Hvar er þetta mál? Nú er kominn 2. maí. Er það á leiðinni? Er það einhvers staðar fast? Hvar er það statt í kerfinu?