148. löggjafarþing — 58. fundur,  2. maí 2018.

skattlagning styrkja til lyfjakaupa o.fl.

[15:37]
Horfa

félags- og jafnréttismálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegur forseti. Varðandi þessa fyrirspurn vil ég segja að þegar hún kom upp á sínum tíma stóð ég í þeirri trú að fram hefði farið fundur í velferðarráðuneytinu þar sem farið hefði verið yfir þessi mál. Hann hafði þegar verið boðaður og í framhaldinu átti að undirbúa í hraði þingmál. Sá fundur dróst því miður og mér var ekki kunnugt um að honum hafði verið frestað á sínum tíma þannig að hann fór í raun fram eftir þá fyrirspurn þar sem ég svaraði þessu. Ég biðst velvirðingar á því gagnvart þinginu.

Hins vegar vil ég segja að ég hef lagt á það áherslu að þessu máli sé hraðað. Það hafa verið samskipti við alla helstu hagsmunaaðila sem það snertir til að reyna að koma því sem fyrst áfram þannig að hægt sé að koma því inn í þingið. Um miðja síðustu viku ýtti ég á eftir þessu, en ég veit ekki nákvæmlega hver staðan er á því núna. Ég mun í framhaldi af þessari fyrirspurn þrýsta á þetta mál aftur innan ráðuneytisins vegna þess að það er mikilvægt að þarna sé gripið inn í. Þarna eru atriði og menn hafa (Forseti hringir.) aðeins skiptar skoðanir með hvaða hætti þetta verður gert. Ég veit að það hefur verið til umræðu innan ráðuneytisins í góðu samráði við helstu hagsmunaaðila, að því er ég best veit.