starfsemi Airbnb á Íslandi.
Hæstv. forseti. Á undanförnum fimm árum hefur sá sem hér stendur beint fyrirspurn til fimm ráðherra Sjálfstæðisflokksins sem varða Airbnb-starfsemi á Íslandi, þar sem fram hefur komið að þetta er líklega stærsta svarta hagkerfið á Íslandi. Þarna eru skattsvik væntanlega meiri en víða annars staðar í kerfinu. Svör sem ég hef hingað til fengið frá fyrrgreindum ráðherrum hafa lýst áhugaleysi, skeytingarleysi og metnaðarleysi.
Nú langar mig til þess að beina orðum mínum til ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og spyrja hana hvað hún hyggist gera til þess að koma böndum á þessa starfsemi. Eins og ég sagði áðan hef ég bent á að þetta sé svart hagkerfi. Það er ekki nóg. Ég hef bent á að þetta séu stór skattsvik. Það er ekki nóg. Nú í haust kom fram að þessi starfsemi er, að dómi lögreglu, einn helsti vettvangur mansals og vændis á Íslandi. Það virðist heldur ekki nóg til að reyna að koma böndum á þessa starfsemi. Og nú síðast fyrir nokkrum dögum síðan kemur í ljós að Hagstofa Íslands er búin að gera samanburð á því hverjar væntar tekjur af þessari starfsemi séu. Veltan var 20 milljarðar króna í fyrra — 20 milljarðar króna, en 10% starfseminnar eru skráð.
Hagstofan heldur því fram að fjármunir þeir sem aflast í þessu kerfi verði ekki eftir á Íslandi, heldur séu innheimtir erlendis og komi aldrei til Íslands. Nú spyr ég hæstv. ráðherra: Vilt þú, hæstv. ráðherra, beita þér fyrir því að nú loksins verði farið í alvöruúttekt á því með aðstoð lögreglu, hverjir eru með leyfi, t.d. eins og hér á höfuðborgarsvæðinu, til þess að hægt verði að koma böndum á þennan rekstur?