starfsemi Airbnb á Íslandi.
Hæstv. forseti. Það er rétt hjá hæstv. ráðherra, við höfum rætt þetta reglulega vegna þess að það gerist ekki neitt. Þess vegna höldum við áfram að ræða þetta. Mismunandi starfsemi, segir ráðherrann. Það er rétt. Þess vegna þarf líka að skrá hana vegna þess að sú starfsemi sem er ekki einkaaðilastarfsemi á að greiða hærri fasteignagjöld o.s.frv. Ráðherra segist ekki vilja merkja þessa starfsemi sem sérstaka ólöglega starfsemi. Þá bendi ég á að síðast þegar ég vissi voru 312 leyfi skráð af u.þ.b. 3.500 aðilum sem leigja út. Þeir sem eru ekki skráðir eru að brjóta lög vegna þess að það á að skrá þessa starfsemi.
Það er ekki að ófyrirsynju að maður talar hér um lögbrot. Gefa í varðandi eftirlit, segir hæstv. ráðherra. Ég fagna því mjög. Ég veit það, ég þykist þess fullviss eftir að vera búinn að ræða við Stjórnstöð ferðamála hér í landinu, að það er þeim kappsmál að þetta sé gert líka vegna þess að þeir sem ekki eru skráðir (Forseti hringir.) eru með samkeppnisforskot; þeir eru ekki að greiða skyldur og gjöld eins og aðrir í þessum bransa sem eru heiðarlegir. Það er ekkert mál fyrir (Forseti hringir.) hæstv. ráðherra að fá í lið með sér lögreglu, ferðamálasamtökin, sýslumanninn og ganga í þetta mál einu sinni.