148. löggjafarþing — 58. fundur,  2. maí 2018.

eftirlitshlutverk þingsins.

[15:48]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Herra forseti. Ég má til með að koma hingað upp og taka undir orð hv. þm. Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur og hvetja hæstv. forseta til að styðja stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í störfum sínum við að fara yfir þessi mál.

Ég vil rifja upp að Alþingi fer með eftirlitsstörf gagnvart framkvæmdarvaldinu. Það kemur skýrt fram í þingsköpunum. Sömuleiðis hvað varðar upplýsingaskyldu ráðherra þá er full ástæða til að draga í efa að hún hafi verið uppfyllt á fundi velferðarnefndar og hér í þessum þingsal í kringum þetta mál allt, eins og hefur komið fram í fjölmiðlum.

Til að nota mínar síðustu sekúndur ætla ég að rifja upp fyrir þingheimi hver upplýsingaskylda ráðherra er, með leyfi forseta. Í 50. gr. þingskapa segir:

„Við umfjöllun um þingmál, við sérstakar umræður, í svörum við fyrirspurnum þingmanna og í skýrslum, hvort sem er að eigin frumkvæði eða samkvæmt beiðni þingmanna, svo og við athugun mála að frumkvæði fastanefnda þingsins, skal ráðherra leggja fram þær upplýsingar sem hann hefur aðgang að og hafa verulega þýðingu fyrir mat þingsins á málinu.“

Þetta er nú bara frekar skýrt, hæstv. forseti.